Ísak veit hvernig þú átt kyrrsetja skurðarbretti

Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins gefur lesendum góð ráð.
Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins gefur lesendum góð ráð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þá er komið að hús­ráði vik­unn­ar úr smiðju fyr­irliða ís­lenska kokka­landsliðsins, Ísaks Arons Jó­hanns­son­ar eins og hefð er fyr­ir. Hann gef­ur les­end­um mat­ar­vefs­ins góð hús­ráð flestalla föstu­daga og nú er það gott ráð við eldhússtörfin. Þegar unnið er á skurðarbretti, skiptir máli hvernig frágangurinn er og hægt er að koma í veg fyrir að brettið renni til og frá.

Svona er best að tryggja að skurðarbrettið fari ekki á …
Svona er best að tryggja að skurðarbrettið fari ekki á ferð og flug. Ljósmynd/Aðsend

„Kyrrsettu skurðarbrettið, að skera á bretti sem rennur til og frá getur verið óþolandi og jafnvel hættulegt. Til að koma í veg fyrir þetta er sniðugt að bleyta pappír eða tusku og setja undir skurðarbrettið. Skurðarbrettið nær þannig gripi við borðið og fer ekki á flug þegar verið er að skera,“ segir Ísak og bætir við að hann noti þetta ráð ávallt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert