Innköllun á Halva bedeck mit Pisazien

Market Sara hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum vöruna …
Market Sara hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum vöruna Halva bedeck mit Pisazien. Ljósmynd/Aðsend

Market Sara, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum vöruna Halva bedeck mit Pisazien.

Tilkynning barst í gegnum viðvörunarkerfið RASFF um að salmonella hafi greinst í lotu af vörunni.

Hver er hættan?

Salmonella getur valdið alvarlegum veikindum, sérstaklega hjá viðkvæmum einstaklingum og hjá fólki í áhættuhópum eins og börnum, eldra fólki eða fólki með undirliggjandi sjúkdóma. 

Upplýsingar um vöru

Vörumerki: Baladna

Vöruheiti: Halva bedeck mit Pisazien

Geymsluþol: 22/10/2025

Strikamerki: 8681506260376

Nettómagn: 350 g

Framleiðandi: Elsultan Gida

Framleiðsluland: Tyrkland.

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Market Sara, Lóuhólum 2-6

Leiðbeiningar til neytenda:

Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki, farga henni eða skila í Market Sara.

Frekari upplýsingar fást hjá Market Sara ehf í síma 761 0971 eða netfanginu: najatmohammad323@gmail.com

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert