Pittsburgh-hamborgarinn vann World Burger Tour keppni Hard Rock

Arthur Pétursson, betur þekktur sem Túri, yfirkokkur á Hard Rock …
Arthur Pétursson, betur þekktur sem Túri, yfirkokkur á Hard Rock Café í Reykjavík, með einn af hamborgurunum. Ljósmynd/Aðsend

Hard Rock-veitingahúsakeðjan heldur reglulega World Burger Tour, þar sem Hard Rock-staðir í hverju landi senda inn hamborgara og keppa um besta borgarann og hefur keppnin staðið yfir í allt sumar. Alls tóku rúmlega 150 Hard Rock-staðir víðs vegar um heiminn þátt og sendu inn hamborgara í keppnina. Hard Rock Cafe Reykjavík bauð upp á Rokk Rækjuborgarann.

Þeir fimm borgarar sem seldust hlutfallslega best fóru á matseðil út um allan heim og kepptu um fyrsta sætið. Pittsburgh-borgarinn var langvinsælastur og vann keppnina með yfirburðum.

„Það er búið að vera mjög skemmtilegt að geta boðið upp á þessa borgara í sumar,“ segir Arthur Pétursson, betur þekktur sem Túri, en hann er yfirkokkur á Hard Rock Café í Reykjavík.

Borgarinn mjög bragðgóður

Túri segir að allir fimm borgararnir hafi selst mjög vel en að Pittsburgh-borgarinn hafi verið langvinsælastur þeirra. „Borgarinn er mjög bragðgóður og akkúrat það sem maður myndi búast við að kæmi frá Kananum. Það fer ekki á milli mála að þetta er ameríski borgarinn í keppninni. Hann verður í boði hjá okkur núna út september, svo að þeir sem eiga eftir að smakka ættu bara að drífa sig,“ segir Túri.

Túri hefur verið viðloðandi Hard Rock Cafe mjög lengi og byrjaði með Tómasi Tómassyni á Hard Rock Cafe þegar staðurinn var í Kringlunni á sínum tíma. Hann hefur unnið síðastliðin 20 ár á Hard Rock-stöðum víða um heim.

Verður til sölu út september

Pittsburgh-borgarinn verður áfram í sölu út september, þannig að þennan mánuð er síðasti séns að smakka þennan goðsagnakennda borgara. Pittsburgh samanstendur af tveimur smass-hamborgarabuffum, legendary sósu, reyktu beikoni, súrum gúrkum, bjór-ostasósu, viskí-beikonsultu, amerískum osti og frönskum á milli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert