Svona skerðu kjöt í þunna strimla

Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins gefur lesendum góð ráð.
Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins gefur lesendum góð ráð. Samsett mynd

Þá er komið að hús­ráði vik­unn­ar úr smiðju fyr­irliða ís­lenska kokka­landsliðsins, Ísaks Arons Jó­hanns­son­ar eins og hefð er fyr­ir. Margir þekkja að það getur verið kúnst að skera kjöt niður í fallegar sneiðar og sérstaklega þegar það á að skera kjötið í þunna strimla. Ísak kann gott ráð við því.

„Frystið kjöt áður en það er skorið í strimla. Að skera kjöt fyrir „Stir fry“ eða álíka rétti sem krefjast þunna strimla af kjöti er sniðugt að lausfrysta kjötið. Léttara er að skera kjötið í flotta strimla, muna bara að skera á móti vöðvaþræðinum til að það verði meyrara.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert