Um 125 tonn af íslensku grænmeti gegnum Bændamarkaðinn

Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri með nýtt og ferskt íslenskt grænmeti.
Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri með nýtt og ferskt íslenskt grænmeti. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi

Bændamarkaður í verslunum Krónunnar um land allt kemst á fullt nú um helgina með fjölbreyttu úrvali fersku og ópökkuðu grænmeti beint frá býli íslenskra garðyrkjubænda hvaðanæva að á landinu.

Þetta er í áttunda sinn sem Bændamarkaður Krónunnar er haldinn og hafa vinsældir hans meðal viðskiptavina farið vaxandi ár frá ári. Má í því sambandi nefna að á markaðnum í fyrra seldust yfir 100 tonn af nýuppteknu íslensku grænmeti samanborið við 30 tonn þegar bændamarkaðurinn var fyrst haldinn árið 2012.

Bændamarkaðurinn býður upp á fjölbreytt og nýstárlegt úrval af nýuppteknum …
Bændamarkaðurinn býður upp á fjölbreytt og nýstárlegt úrval af nýuppteknum íslensku grænmeti. Ljósmynd/Aðsend

Magnið ræðst af framboði

Aðspurð segir Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar að búist sé við enn meira magni í ár sem mun endalega ráðast af framboði hverju sinni frá garðyrkjubændum landsins og er því breytilegt hve marga daga markaðnum er haldið úti hverju sinni.

„Talið er að um 125 tonn af íslensku grænmeti fari gegnum Bændamarkað Krónunnar í ár. Fyrir utan það hve brakandi ferskt íslenska grænmetið er á þessum árstíðabundna bændamarkaði hjá Krónunni hefur markaðurinn ekki síst notið mikilla vinsælda fyrir þær sakir hve fjölbreyttar tegundir eru í boði og oft nýstárlegt, framandi á litinn og furðulegt í laginu,“ segir Guðrún.

Vekur forvitni og áhuga unga fólksins

Guðrún segir að eftir því sé tekið hve börn og unglingar hafi gaman af því að skoða úrvalið. „Þarna eru oft alls kyns furðupaprikur, gulrætur í ýmsum litum, litlar agúrkur auk kóralkáls og bláleits blómkáls, svo nokkuð sé nefnt; oft nýjungar sem fást ekki á öðrum tíma ársins. Ég held að þessi skemmtilegi markaður, sem haldinn er í verslunum Krónunnar um land allt í samstarfi við Sölufélag garðyrkjubænda, sé mjög vel til þess fallinn að vekja og auka áhuga fólks, einkum barna og unglinga, á íslenska grænmetinu og hollustu þess fyrir líkama og sál.“

Grænmetið vekur gjarnan forvitni og áhuga unga fólksins.
Grænmetið vekur gjarnan forvitni og áhuga unga fólksins. Ljósmynd/Aðsend

Ættjarðartómatarnir vekja jafnan lukku

Sem dæmi um forvitnilegan ávöxt, sem gjarnan er á Bændamarkaðnum, er hinn svokallaði ættjarðartómatur (Heirloom), sem lítur út eins og tómatar gerðu fyrir daga nútímatómatarins. Ættjarðartómaturinn er þó enn vel þekktur meðal Evrópuþjóða og í Bandaríkjunum þar sem er löng hefð er fyrir tómatrækt, enda hafa þeir ýmsa eftirsóknarverða kosti. Sölufélag garðyrkjubænda segir t.d. að ættjarðartómatarnir séu þekktir fyrir að vera allskonar að lögun, stærð og í ýmsum litum. Þeir eru mjög safaríkir, bragðgóðir og hollir. Heirloom tómatar smakkast t.d. vel með ítalskri ólífuolíu, íslenskri basilíku og sjávarsalti. 

ændamarkaðurinn stendur yfir frá föstudegi til sunnudags næstu helgar í …
ændamarkaðurinn stendur yfir frá föstudegi til sunnudags næstu helgar í Krónunni. Ljósmynd/Aðsend

Getur ekki verið ferskara

Allt íslenska grænmetið á Bændamarkaði Krónunnar er tínt eða tekið upp með reglulegu millibili dagana sem markaðurinn stendur. Það berst því nýtt og ópakkað frá bændum landsins til verslana Krónunnar og getur því ekki verið mikið ferskara en það.

„Bændamarkaðurinn er hornsteinn íslensks landbúnaðar og fyrir okkur er þetta meira en bara viðburður, þetta er uppskeruhátíð sem ýfir upp íslenska matarmenningu og styður við staðbundna framleiðslu,“ segir Guðrún að lokum

Bændamarkaðurinn stendur yfir frá föstudegi til sunnudags næstu helgar í Krónunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert