Eggja- og kotasælusalat nýjasta æðið

Eggja- og kotasælusalatið er nýjasta æðið hjá Berglindi Hreiðars hjá …
Eggja- og kotasælusalatið er nýjasta æðið hjá Berglindi Hreiðars hjá Gotterí og gersemar. Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér kemur einfalt og hollt salat, eggja- og kotasælusalat, sem passar ómótstæðilega vel með hrökkkexi og er nýjasta æðið hennar Berglindar Hreiðars hjá Gotterí og gersemar. Hún deildi uppskriftinni með fylgjendum sínum á dögunum sem gaman er að rýna í hér fyrir neðan.

Eggja- og kotasælusalat með hrökkkexi

  • 4 harðsoðin egg
  • 6 msk. kotasæla
  • 3 msk. grísk jógúrt
  • ½ rauð paprika
  • 3 vorlaukar
  • Sítrónupipar, salt, hvítlauksduft
  • Hrökkkex bitar að eigin vali

Aðferð:

  1. Saxið papriku og lauk og skerið eggin niður í eggjaskera.
  2. Blandið öllu saman og kryddið eftir smekk.
  3. Njótið með Til hamingju hrökkkex bitum að eigin vali.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert