Helga Magga heldur áfram að toppa sig og nú er hún komin með vöfflur í nestisboxið.
Samsett mynd
Helga Magga fer á kostum þessa dagana með nýjustu nestishugmyndina. Hún gerði þessar kotasæluvöfflur sem hún segir að séu fullkomin næring í morgunmat eða í nestisboxið. Þær líta vel út og vel þess virði að prófa. Hvern langar ekki að taka með sér hollar vöfflur með sér í nestisboxið?
Kotasæluvöfflur
- 150 g kotasæla (3 dl)
- 80 g haframjöl (2 dl)
- 2 egg
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 msk. husk (má sleppa)
- 200 ml léttmjólk
Aðferð:
- Blandið öllum innihaldsefnunum saman í blandara eða matvinnsluvél.
- Hitið síðan vöfflujárn og bakið vöfflurnar í vöfflujárni. Þið finnið ykkar rétt skammt í ausuna.
- Ef deigið er of þykkt er gott að bæta örlítið meiri mjólk saman við deigið.
- Þið getið sett það sem hugurinn girnist á vöfflurnar og búið til vöfflusamlokur ef vill til að taka með í nesti.
- Vöfflurnar eru mjög góðar með osti, skinku og grænmeti og einnig hægt að borða þær með sultu og rjóma ef vill.