Þessi hrákaka er ótrúlega einföld og fljótleg að búa til, það eina sem þarf er matvinnsluvél eða góður blandari. Uppskriftin kemur úr smiðju Önnu Eiríks deildarstjóra í Hreyfingu en Anna heldur einnig úti heilsuvef þar sem hún býður upp á fjarþjálfun, hollustu uppskriftir og fleira áhugavert. Sjá nánar hér.
Þessi hrákaka er í miklu uppáhaldi hjá henni og er oftar en ekki til í frystinum.
„Mér finnst æðislegt að eiga þessa köku inn í frysti til að gæða mér á þegar sætindaþörfin hellist yfir,“ segir Anna og hvetur lesendur Matarvefsins til að prófa.
Eðal hrákaka Önnu Eiríks
Botn
- 100 g möndlur, lítill poki
- 150 g saxaðar döðlur
- 2 msk. kakó
Krem
- 1 lárpera
- 1 banani
- 3 msk. fljótandi kókosolía
- 3 msk. Agave síróp
- ½ tsk. vanilludropar
Toppurinn
- 100-150 g dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Byrjið á botninum og setjið fyrst saxaðar döðlur í bleyti.
- Hellið möndlunum í matvinnsluvél og saxið.
- Blandið kakóduftinu saman við og hellið svo vatninu af döðlunum og bætið þeim við.
- Hrærið allt vel saman og setjið í form.
- Gott er að setja bökunarpappír undir ef þið viljið geta tekið hrákökuna upp úr forminu í heilu lagi til að skera í litla bita.
- Setjið síðan öll innihaldsefnin sem þarf í kremið í matvinnsluvélina og þeytið vel saman.
- Hellið síðan yfir botninn.
- Bræðið súkkulaðið við vægan hita og hellið því síðan yfir kremið.
- Setjið síðan kökuna í frysti og geymið þar.
- Gott er að taka hana út aðeins áður en hún er borin fram en hún er líka góð mjög köld eða hálf frosin.