Komo mun keppa fyrir Íslands hönd á evrópsku götubita verðlaununum, „European Street Food Awards“, sem er stærsta götubita keppni í heimi. Keppnin sjálf fer fram í Saarbrucken í Þýskalandi dagana 4. til 6. október næstkomandi og mun Komo keppa við 18 aðrar Evrópu þjóðir um titilinn „Besti Götubitinn í Evrópu“
Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi Komo hefur unnið til fjölda verðlauna á Götubitahátíðinni hér heima og hefur hann samtals unnið til níu verðlauna. Í ár sigraði hann í flokkunum „Besti smábitinn“ og „Besti grænmetisbitinn“ með „Thai melónusalati“ og í fyrra sigraði hann flokkinn „Besti smábitinn“ með „Korean fried tiger balls“ en þetta eru einmitt réttirnir sem verða á boðstólum á hátíðinni.
Áhugasamir geta fylgst með ferðalaginu inn á Facebook Komo hér og á Instagram síðunni hér.