Mateyjarkokteill GOTT sló í gegn

Mateyjarkokteillinn á GOTT í ár var innblásinn úr íslenskri náttúru …
Mateyjarkokteillinn á GOTT í ár var innblásinn úr íslenskri náttúru þar sem krækiberin eru í forgrunni. Samsett mynd

Það er að koma helgi og þá er að svipta hulunni af helgar­kokteill Mat­ar­vefs­ins. Að þessu sinni er það þessi vínrauði krækiberjakokteill sem var í boðið á veit­ingastaðnum GOTT í Vest­manna­eyj­um í til­efni mat­ar­hátíðar­inn­ar MAT­EY sem hald­in var í byrj­un sept­em­ber þar sem mikið var um dýrðir. Þessi kokteill sló í gegn hjá matargestum og mun á efa vera aftur í boði.

Klaudia barþjónn fór í berjatínslu á Eyjunni og nældi sér …
Klaudia barþjónn fór í berjatínslu á Eyjunni og nældi sér í krækiber. Ljósmynd/Berglind Sigmars

Heiður­inn af þess­um kokteil á Klaudia barþjónn á GOTT og hún bjó til að mynda til heimagerðan krækiberjasafa til að setja út í kokteilinn ásamt sætu sírópi. Gaman að sjá þegar íslenska náttúran fær að njóta sín í kokteila- og matargerð en teymið á GOTT er iðið við að nýta það sem náttúran býður upp á.

Fallegur kokteill borinn fram í kampavínsglasi.
Fallegur kokteill borinn fram í kampavínsglasi. Ljósmynd/Karl Petersson

Mateyjarkokteill GOTT – Krækiberjakokteill

Fyrir 1 - Kampavínsglas

  • 60 ml heimagerður krækiberjasafi (sjá uppskrift fyrir neðan)
  • 30 ml Ísafold gin
  • 20 ml eggjahvíta
  • 20 ml sætt síróp (sjá uppskrift fyrir neðan)
  • 20 ml ferskur sítrónusafi
  • Klaki eftir þörfum
  • Til skrauts:
  • Sítrónu lavender eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið krækiberjasafa, gin, eggjahvítu, sætt síróp, sítrónusafa í kokteilhristara og fyllið upp með klökum.
  2. Hristið í um það bil 10 sekúndur.
  3. Sigtið og hellið í hátt kampavínsglas.
  4. Skreytið glasið með sítrónu lavender.
  5. Berið fram og njótið.

Heimagerður krækiberjasafi

  • 2 kg fersk krækiber
  • 1l vatn
  • 1l sykur

Aðferð:

  1. Sjóðið saman allt hráefnið í um það bil hálftíma.
  2. Síið ávextina gegnum sigti og kælið safann niður fyrir notkun.

Sætt síróp

  • 1 kg hvítur flórsykur
  • 1l vatn

Aðferð:

  1. Sjóðið hráefnið saman þar til sykurinn hefur bráðnar alveg og kælið síðan niður.
Í kokteilnum er líka íslenskt gin.
Í kokteilnum er líka íslenskt gin. Ljósmynd/Berglind Sigmars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert