Haustið kallar á matarmikla súpu með nýuppteknu grænmeti. Hér er á ferð ein frumlegasta haustsúpa sem fyrirfinnst - fiskisúpa með rófum og chili. Uppskriftin er sterk og rífur í.
Hún kemur frá Helgu Mogensen, sem ekki bara matgæðingur heldur sérfræðingur í grænmetisréttum. Uppskriftina útbjó hún fyrir uppskriftarvef Sölufélags garðyrkjubænda.
Þessi kemur á óvart og mér hefði aldrei dottið í hug að setja rófur í fiskisúpu.
Fiskisúpa með rófum og chili
- 400 g fiskur, þorskur
- 500 ml fisksoð
- Gróft salt eftir smekk
- Hvítur pipar eftir smekk
- Chiliduft á hnífsoddi
- 1 tsk. karrí
- 1 stk. hvítlaukur, saxaður smátt eða marinn
- 2 stk. laukar, skorinn smátt
- 3 stk. rófur
- 1 msk. dill
- 1 msk. fersk steinselja, söxuð
- Vorlaukur, eftir smekk
- 2 stk. lárviðarlauf
Aðferð:
- Hægt að kaupa tilbúinn fljótandi fiskkraft í verslunum. Hlutföll um það bil 5 msk. í 1 l eða fiskkraft teninga og sjóða í vatni.
- Byrjið á því að mýkja laukinn og hvítlaukinn í ólífuolíu ásamt smá salti.
- Hrærið kryddum saman við áður en fiskisoðinu og vatni er bætt út í.
- Skrælið rófurnar og skerið í litla bita og bætið saman við og látið sjóða í 15 mínútur eða þar til þær eru orðnar meyrar.
- Lækkið undir og þeytið súpuna gróflega með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
- Mögulega þarf að bragðbæta súpuna ásamt því að setja örlítið af sítrónusafa til að draga fram ferskleika hennar.
- Skerið fiskinn í smáa bita og setjið út í sjóðandi heita súpuna rétt undir lokin ásamt smátt söxuðu dilli og steinselju.
- Berið fram með því sem hugurinn girnist, til dæmis með nýbökuðu brauði og þeyttu smjöri.