Matta áferðin ný af nálinni

Ripple Frost serían frá danska hönnunarmerkinu Ferm Living er ný …
Ripple Frost serían frá danska hönnunarmerkinu Ferm Living er ný útgáfa af sívinsælu Ripple línunni. Samsett mynd

Ripple Frost serían frá danska hönnunarmerkinu Ferm Living er ný útgáfa af Ripple línunni sem notið hefur mikilla vinsælda hérlendis. Um er að ræða glæsileg og nútímaleg munnblásin glös, skálar og karöflur með mattri og hrjúfri áferð sem setja sinn svip á borðhaldið og henta fyrir mörg ólík tilefni. 

Glösin eru nútímalega hönnuð, munnblásin og með mattri áferð.
Glösin eru nútímalega hönnuð, munnblásin og með mattri áferð. Ljósmynd/Aðsend

Danska hönnunarmerkið Ferm Living var stofnað árið 2005 af grafíska hönnuðinum Trine Anderson. Ferm Living hannar og framleiðir líflegar og fallegar vörur fyrir heimilið með grafísku ívafi.

Hægt er að fá skálar, glös og karöflu í stíl.
Hægt er að fá skálar, glös og karöflu í stíl. Ljósmynd/Aðsend

Nýja serían fæst meðal annars í verslunni lífsstílsversluninni Epal.

Könnurnar eru fallega hannaðar og stílhreinar.
Könnurnar eru fallega hannaðar og stílhreinar. Ljósmynd/Aðsend
Hanastélsglösin eru einstaklega skemmtileg og hægt er að bera fram …
Hanastélsglösin eru einstaklega skemmtileg og hægt er að bera fram forrétti og eftirrétti í þeim líka líkt og drykki. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert