Taco-veislan sem bjargar þriðjudeginum

Ekta „Taco Tuesday“ sælkeramáltíð til að bjóða upp á.
Ekta „Taco Tuesday“ sælkeramáltíð til að bjóða upp á. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Hér er á ferðinni tilbreyting fyrir „Taco Tuesday“ sem kemur í smiðju Berglindar Hreiðars hjá Gotterí og gersemar. Ef ykkur langar að slá í gegn á þriðjudegi og bjóða í mat þá er þetta rétturinn.

Sjáið hvernig Berglind vinnur verkið.

Fylltar sælkera tortilla kökur

Fyrir 4

  • 500 g nautahakk
  • ½ poki Taco krydd
  • 8 stórar tortilla kökur
  • 8 litlar tortilla kökur
  • 8 msk. sýrður rjómi
  • 16 msk. ostasósa
  • Maarud tortilla chili cheese flögur
  • Rósakál/Iceberg, saxað
  • 4 tómatar, saxaðir
  • Rifinn ostur
  • Lárperumauk (sjá uppskrift að neðan)
  • Olía til steikingar

Aðferð:

  1. Steikið hakkið og kryddið, geymið.
  2. Smyrjið miðjuna á stóru tortilla kökunni með um 1 msk. af sýrðum rjóma.
  3. Setjið næst hakk yfir og þá um 2 msk. af ostasósu.
  4. Næst má raða tortilla flögum yfir ostasósuna og setja kál, tómata og rifinn ost ofan á.
  5. Að lokum má setja litla tortilla köku ofan á allt og bretta hina stóru upp á hana.
  6. Steikið við meðalhita á pönnu þar til kakan byrjar að gyllast og verður stökk.
  7. Skerið til helminga og berið fram með guacamole og Maarud tortilla flögum.

Lárperumauk

  • 3 litlar lárperur 
  • 100 g piccolo tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • 1 msk. límónusafi
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Saxið laukinn og tómatana niður.
  2. Stappið lárperurnar og kreistið límónusafann yfir.
  3. Blandið öllu saman og kryddið eftir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert