Girnileg tómatsúpa og funheitar ostasamlokur

Tómatsúpa borin fram með þeyttum rjóma og grilluðum ostasamlokum.
Tómatsúpa borin fram með þeyttum rjóma og grilluðum ostasamlokum. Ljósmynd/Andrea Gunnarsdóttir

Andrea Gunnarsdóttir matarbloggari elskar súpur og sérstaklega á þessum árstíma. Hún hefur mikið dálæti af þessari girnilegu tómatsúpu sem hún ber fram með grilluðu ostasamlokum.

„Þessa tómatsúpu eldaði ég í fyrsta sinn fyrir nokkrum vikum og okkur fannst hún svo góð að ég er búin að elda hana nokkrum sinnum á stuttum tíma, alltaf við mikla lukku,“ segir Andrea.

Það er vel hægt að mæla með þessari og það fullkomnar máltíðina að bera súpuna fram með funheitum grilluðum ostasamlokum.

Matarblogg Andreu

Tómatsúpa Andreu

Fyrir 2

  • 1 ½ msk. smjör
  • 1 laukur, hakkaður eða saxaður
  • 1 sóló hvítlaukur, pressaður eða fínhakkaður
  • Smá rauðar chili flögur
  • 1 dós niðursoðnir hakkaðir tómatar
  • 1 lítil dós tómatpúrra
  • 2 dl kjúklingasoð eða vatn
  • ½  grænmetisteningur
  • ½  kjúklingateningur
  • 1 dl rjómi
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Hvítur pipar eftir smekk
  • Smá þeyttur rjómi (má sleppa)
  • Steinselja, fínhökkuð (má sleppa)

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið í potti á miðlungsháum hita.
  2. Steikið laukinn þangað til glær, það tekur um 6 mínútur.
  3. Bætið hvítlauknum og chili flögum saman við og steikið í 1 mínútu til viðbótar.
  4. Bætið tómötum, tómatpúrru, grænmetistening og kjúklingatening saman við og látið suðuna koma upp.
  5. Látið súpuna malla í 15 mínútur.
  6. Að þeim liðnum er súpan sett í blandara og mixuð þangað til alveg slétt (það er upplagt að græja grillaðar ostasamlokur á meðan).
  7. Færið sósuna aftur í pottinn og látið hana hitna aftur.
  8. Þegar súpan er orðin passlega heit er hún tekin af hitanum og rjómanum hrært saman við hana.
  9. Berið strax fram með smá þeyttum rjóma ef vill, smátt saxaðri steinselju og grilluðum ostasamlokum með bragðmiklum osti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert