„Dásamlegar eins og lítil, falleg brjóst“

Valgerður Gréta Gröndal matgæðingur með meiru ætlar að halda upp …
Valgerður Gréta Gröndal matgæðingur með meiru ætlar að halda upp á Bleika daginn og bjóða upp á „Ekkert“ kökurnar sem eru eins og lítil, falleg brjóst. mbl.is/Karítas

Valgerður Gréta Gröndal, alla jafna kölluð Valla, matgæðingur, ætlar að halda upp á Bleika daginn sem framundan er á miðvikudaginn 23. október næstkomandi og bjóða upp á þessa dýrðlegu kökur sem minna á lítil brjóst.

Dásamlega fallegar kökur sem eiga sér sögu.
Dásamlega fallegar kökur sem eiga sér sögu. mbl.is/Karítas

„Þessar dásemdir eru kallaðar „Ingenting“ á dönsku - sem á íslensku þýðir „ekkert“. Þær eru upprunalega ættaðar frá Suður-Jótlandi og sagan segir að það sé vegna þess að þegar fólk segir ég gæti ekki borðað snefil í viðbót þá er samt alltaf pláss fyrir eina „ekkert“ köku, því þær eru svo léttar í sér að þær teljast varla með,“ segir Valla og hlær.

 „Venjulega eru þær hvítar en ég ákvað að lita marensinn bleikan í tilefni af bleikum október. Við það verða þær pínu eins og lítil, falleg brjóst.“

Þessar eru fínlegar, léttar í sér og bráðna í munni. Passa sérstaklega vel með vel kældum búbblum.

Valla ætlar að bera þessar dásemdir fallega fram á borð …
Valla ætlar að bera þessar dásemdir fallega fram á borð og bjóða upp á ískaldar freyðandi búbblur með. mbl.is/Karítas

Ekkert – lítl brjóst

30-35 kökur

Botnar

  • 300 g hveiti
  • 2 eggjarauður
  • 175 g smjör
  • 2 msk. rjómi
  • 25 g flórsykur
  • 1/2 tsk. rifinn sítrónubörkur
  • 1 tsk. vanillusykur
  • 3 msk. smátt saxaðar möndlur eða möndlumjöl

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefni fyrir kexbotnana í matvinnsluvél og vinnið saman í smá stund.
  2. Þegar slétt deig hefur myndast pakki því inn plastfilmu og kæli í ísskáp í að minnsta kosti 30 mínútur.
  3. Forhitið ofninn í 160°C án blásturs.
  4. Fletjið deigið út á létt hveitistráðu yfirborði í þykkt 3 mm. Notið kringlótt riflaga form til að skera út hringi og setja á bökunarplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír.
  5. Endurtakið þar til allt deigið hefur verið notað.

Marenstoppar

  • 2 stórar eggjahvítur
  • Salt á hnífsoddi
  • 275 g sykur
  • 1 tsk. borðedik
  • Bleikur matarlitur
  • Flórsykur eftir smekk

Aðferð:

  1. Þeytið eggjahvíturnar með örlítilli klípu af salti þar til þær eru alveg stífar.
  2. Bætið sykri og vanillu rólega út í, smátt og smátt, og þeytið á miklum hraða þar til marengsinn verður glansandi og myndar stífa toppa.
  3. Bætið ediki og matarlitnum saman við og þeytið þar til liturinn er jafn.
  4. Blandið söxuðum möndlum saman við með sleikju. Setjið marensinn í sprautupoka með kringlóttum stút.
  5. Sprautið marensnum á hvern botn næstum út að brún (marensinn dreifir ekki mikið úr sér við bakstur).
  6. Bakið kökurnar í um það bil 18-20 mínútur eða þar til botnarnir eru bakaðir í gegn og topparnir létt stökkir.
  7. Takið kökurnar úr ofninum og látið kólna áður en flórsykur er dustaður yfir eftir smekk.
  8. Berið fram og njótið með freyðandi búbblum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka