Sylvía töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu

Sylvía Haukdal töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu og …
Sylvía Haukdal töfraði fram þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu og kókoskremi í tilefni Bleika dagsins. Samsett mynd

Sylvía Haukdal ástríðubakari og sæl­keri byrjuð að undirbúa sig fyrir Bleika daginn sem framundan er, miðvikudaginn 23. október næstkomandi. Hún er ætlar að bjóða upp á þessa dásamlegu kókosköku með sítrónufyllingu og bleiki liturinn verður í forgrunni.

Sylvía er þekkt fyr­ir sín­ar ljúf­fengu kök­ur og fallegu köku­skreyt­ing­ar og þessa dag­ana blómstra hún sem aldrei fyr­ir í köku­gerðinni hjá 17 Sortum.

Falleg bleika kakan hennar Sylvíu, mikið augnakonfekt að njóta.
Falleg bleika kakan hennar Sylvíu, mikið augnakonfekt að njóta. mbl.is/Karítas

„Ég mun baka þessa köku og bera hana fram á fallega dekkað borð þar sem bleiki liturinn verður í forgrunni. Síðan verð ég örugglega í einhverju bleiku,“ segir Sylvía með bros á vör.

Ef þið viljið hafa kremið bleikt er upplagt að setja örlítið af bleikum matarlit út í kremið og blanda saman.

Sylvía skreyti kökuna með makkarónum og perlukökuskrauti á listrænan og …
Sylvía skreyti kökuna með makkarónum og perlukökuskrauti á listrænan og fallegan hátt. mbl.is/Karítas

Kókoskaka með sítrónufyllingu og kókoskremi

Kókosbotn

  • 240 g Kornax Hveiti
  • 50 gr kókos
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt
  • 170 g smjör
  • 300 g sykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 5 stk. eggjahvítur
  • 110 ml kókosmjólk
  • 95 ml nýmjólk
  • 45 ml olía

Aðferð:

  1. Byrjið á því að stilla ofninn á 175°C (viftu).
  2. Setjið næst smjör, við stofuhita, og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið þar blandan til verður ljós og létt.
  3. Setjið síðan eggjahvíturnar rólega saman við, lítið í einu.
  4. Hrærið síðan saman við blönduna 1/3 af þurrefnunum.
  5. Hrærið síðan við 1/2 af blautefnunum, mjólk, kókosmjólk, olíu og
  6. Vanilludropum, saman við.
  7. Hrærið loks næsta skammti, 1/3 ,af þurrefnunum saman við.
  8. Setjið síðan restinni af blautefnunum út í.
  9. Setjið síðan lokum síðasta skammtinn af þurrefnunum út í.
  10. Gott er að hræra deigið ekki of mikið en samt nóg til þess að allt sé komið saman.
  11. Setjið síðan deigið í þrjú 15 cm stór hringform.
  12. Setjið að lokum formin inn í ofn og bakið við 175°C hita í um það bil 20-25 mínútur.

Kókoskrem

  • 650 g smjör
  • 650 g flórsykur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 200 ml kókosmjólk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að þeyta smjörið, við stofuhita, þar til það verður ljóst og létt.
  2. Bætið síðan flórsykrinum og vanilludropunum saman við og haldið áfram
  3. að þeyta.
  4. Síðan bætið þið við kókosmjólkinni, við stofuhita, saman við og þeytið í 2-3
  5. mínútur.

Sítrónufylling

  • 70 ml sítrónusafi
  • 3 tsk. sítrónubörkur
  • 75 g sykur
  • 4 stk. eggjarauður
  • 45 g smjör

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja öll hráefnin í skál yfir vatnsbað.
  2. Passið að hræra stanslaust í blöndunni þar til hún fer að þykkna og nær
  3. rúmlega 70°C hita.
  4. Sigtið þá blönduna í aðra skál og setjið í kæli.

Samsetning:

  1. Setjið síðan kökuna saman með þunnu lagi af kremi utan um hana.
  2. Setjið loks kökuna í kæli í smá stund áður en þið haldið er áfram að setja krem og
  3. skreyta hana.
  4. Skreytið eins og ykkur langar til og berið hana fram á töfrandi og bleikan hátt.
  5. Sylvía skreytti sína köku til dæmis með bleikum makkarónum, kökuperluskrauti og öðru skemmtilegu skrauti. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka