Syndsamlega góð hindberjamús Sunnevu

Syndsamlega ljúffeng hindberjamús í tilefni Bleika dagsins.
Syndsamlega ljúffeng hindberjamús í tilefni Bleika dagsins. mbl.is/Árni Sæberg

Silfurhafinn Sunn­eva Kristjáns­dótt­ir og nýútskrifaði bakarinn ætlar að bjóða upp á syndsamlega ljúffenga hindberjamús í eftirrétt í kvöld.  Tilefnið er að sjálfsögðu Bleiki dagurinn en músin er fallega dökkbleik á litinn og gleður bæði augu og munn.

Sunneva gerði garðinn frægan á dögunum með íslenska bakaralandsliðinu en þau fengu silf­ur­verðlaun Norður­landa­meist­ara­mót­inu í bakstri, Nordic Cup. Þau vöktu mikla athygli fyrir færni sína í bakstri og ekki síst listræna hæfileika sína. Bakara keppa ekki aðeins á erlendri grundu heldur eru þeir líka iðnir við að styðja við gott málefni eins og þennan dag og í flestum bakaríum landsins í dag, 23. október, var að finna bleikar og girnilegar kræsingar.

Á þessum degi eru lands­menn hvatt­ir til að bera Bleiku slauf­una, klæðast bleiku og lýsa skamm­degið upp í bleik­um ljóma og bjóða upp á bleikar kræsingar svo að all­ar kon­ur sem greinst hafa með krabba­mein finni stuðning og sam­stöðu.

Sunneva skreytti músina með hindberjum, bláberjum og mintulaufum.
Sunneva skreytti músina með hindberjum, bláberjum og mintulaufum. mbl.is/Árni Sæberg

Hindberjamús að hætti Sunnevu

Hindberjamús

  • 450 g hindber (frosin eða fersk)
  • 60 g flórsykur
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 3 gelatín blöð
  • 345 g rjómi

Hindberja „compot“

  • 230 g hindber
  • 50 g sykur
  • 1/2 msk. sítrónusafi

Aðferð:

  1. Byrjið á því að „compotið“ eða sultuna sem fer í botninn.
  2. Setjið hindber, sykur og sítrónusafa í pott og látið malla í um  það bil 10 mínútur eða þangað til blandan hefur þykknað aðeins.
  3. Setjið 4 glös og inn í ísskáp til að láta kólna.
  4. Gerið næst músin.
  5. Ef þið notið frosin hindber, leyfið þá berjunum fyrst að þiðna og ná stofuhita.
  6. Setjið þau því næst í blandara eða matvinnsluvél þangað til þau hafa brotnað niður.
  7. Sigtið síðan blönduna til að fjarlægja fræin.
  8. Loks setjið þið síðan blönduna í pott og látið malla í um 10 mínútur á miðlungs hita eða þangað til blandan hefur þykknað örlítið.
  9. Ef þið notið er fersk ber þá er aðferðin sú sama nema þá getið þið sleppt að sleppa að setja berin í pott.
  10. Setjið síðan er blönduna í stóra skál og setjið til hliðar.
  11. Setjið gelatín blöðin í kalt vatn og látin standa í 10-15 mínútur.
  12. Takið blöðin upp úr eftir 10-15 mínútur og kreistið vel þannig vatnið fari úr þeim.
  13. Best er síðan að setja blöðin í nokkrar sekúndur í örbylgjuofninn þangað til þau bráðna og verða að vökva.
  14. Setjið síðan í  skálina með hindberja blöndunni, flórsykurinn, sítrónusafann og matarlíms vökvann og blandið vel saman.
  15. Passið að hindberjablandan sé ekki of köld né of heit.
  16. Þeytið næst rjómann.
  17. Mikilvægt er að rjóminn sé ekki of þeyttur, þar sem það mun gera það mun erfiðara að blanda honum við hindberja blönduna og áferðin mun ekki vera sú sama.
  18. Þegar rjóminn er þeyttur, blandið honum þá varlega saman við hindberjablönduna í pörtum með sleikju.
  19. Takið næst glösin út úr ísskápnum og setjið músin ofan á hindberjasultuna. Best finnst Sunnevu að nota sprautupoka til að setja músina í glösin.
  20. Setjið síðan glösin aftur inn í ísskáp og látið þau vera þar í að minnsta kosti 5 klukkustundir eða yfir nótt svo að músin stífni upp.
  21. Skreytið síðan músina með ferskum hindberjum, berið fram með þeyttum rjóma og njótið með ykkar bestu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert