Teymi íslenska kokkalandsliðsins eldaði fyrir dönsku konungshjónin

Teymi íslenska kokkalandsliðsins ásamt forsetahjónunum. Hafliði Halldórsson, Björn Skúlason, Hákon …
Teymi íslenska kokkalandsliðsins ásamt forsetahjónunum. Hafliði Halldórsson, Björn Skúlason, Hákon Orri Stefánsson, Snædís Jónsdóttir, Halla Tómasdóttir, Andri Sigurz og Lukas Mosegard. Ljósmynd/Aðsend

Síðdegis á síðasta degi ríkisheimsóknar forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur og eiginmanns hennar Björns Skúlasonar til dönsku konungshjónanna, Friðriks tíunda og Maríu Donaldsson, buðu forsetahjónin til móttöku á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn.

Forsetahjónin ásamt dönsku konungshjónum í móttöku við Norðurbryggju í lok …
Forsetahjónin ásamt dönsku konungshjónum í móttöku við Norðurbryggju í lok tveggja daga ríkisheimsóknar til Danmerkur. Ljósmynd/Ritzau Scanpix

Móttakan var til heiðurs dönsku konungshjónanna. Í móttökunni reiddi teymi íslenska kokkalandsliðsins fram veitingar, þar sem þjálfari kokkalandsliðsins, Snædís Jónsdóttir, var í fararbroddi ásamt Hafliða Halldórssyni. Þau framreiddu smárétti úr íslensku hráefni auk þess sem boðið var upp á íslenskan bjór frá Ölgerðinni.

Áherslan á alíslenska matarupplifun

„Við sáum um matinn í móttöku forsetans til heiðurs konungshjónanna og skipulögðum það í samstarfi við Íslandsstofu og Sendiráðið í Danmörku. Áherslan hjá okkur var á alíslenska upplifun í matnum og allt hráefnið var auðvitað íslenskt. Þetta var 300 manna standandi boð þar sem réttirnir voru í smáréttastíl, borið fram á litlum diskum með gaffli og skeið,“ segir Snædís.

Matseðillinn var hinn glæsilegasti en boðið var upp á:

  • Forréttur: Pönnusteiktur þorskhnakki borinn fram gúrku, hnúðkáli, epli, dilli og hollandaise sósu.
  • Aðalréttur: Íslenskt grillað lambafille borið fram íslensku baby bok choy, shitake sveppum og lambasoðsósu með reyktum beinmerg og ramslög.
  • Eftirréttur: Skyrganash með krækiberja- og bláberjasultu, karamelliseruðu hvítu súkkulaði með mysingskaramellu.

Gaman er að geta þess að þjónustunni stýrði Tinna Óðinsdóttir framreiðslumeistari sem er búsett í Danmörku og rekur þar ásamt sínum manni veitingahúsin Tre Tjenere á Borgundarhólmi og 1971 í Kaupmannahöfn/Fredriksberg.

Snædís að störfum.
Snædís að störfum. Ljósmynd/Aðsend

Ari Eldjárn skemmti gestum

Boðið var upp á létta skemmtidagsskrá þar sem íslenskt listafólk lék við hvern sinn fingur. Sigurður Flosason tónlistarmaður lék tónlist og Ari Eldjárn grínisti skemmti gestum. Með móttökunni lauk formlegri dagskrá ríkisheimsóknarinnar.

Norðurbryggja -Nordatlantens Brygge þar sem móttakan var haldin er menningarhús sem hýsir m.a. starfsemi á vegum Íslands, Færeyja og Grænlands og mun hafa verið sett á fót af fyrrum forseta Vigdísi Finnbogadóttur. Í húsinu er einnig sendiráð Íslands og veitingahúsið Barr í rýminu sem hýsti veitingastaðinn NOMA á upphafsárum þess.

„Við Hafliði fengum vinnuaðstöðu hjá Barr og góða aðstoð þar,“ segir Snædís alsæl með velheppnaða móttöku í Kaupmannahöfn.

Hafliði sá meðal annars um skurðinn á kjötinu, íslenska lambinu.
Hafliði sá meðal annars um skurðinn á kjötinu, íslenska lambinu. Ljósmynd/Aðsend
Eftirrétturinn borinn fram.
Eftirrétturinn borinn fram. Ljósmynd/Aðsend
Hákon að störfum.
Hákon að störfum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka