„Hrekkjavökuveitingar eru þær allra skemmtilegustu“

Hildur Gunnlaugs elskar hrekkjavökuna og ætlar að bjóða upp á …
Hildur Gunnlaugs elskar hrekkjavökuna og ætlar að bjóða upp á hræðilegar kræsingar fyrir allar furðuverurnar. mbl.is/Hákon

Hildur Gunnlaugs arkitekt og lífskúnstner er komin í hrekkjavökugírinn en hrekkjavakan nálgast óðum og verður í öllum sínum skrúða fimmtudaginn þann 31. október næstkomandi.

Hún er byrjuð að skreyta heimilið og undirbúa komu draugana og nornanna. Einnig elskar Hildur að búa til hræðilegar kræsingar og ógnvænlegar veitingar sem fá hárin til að rísa á höfði gesta. Hún ætlar að ljóstrar upp nokkrum skemmtilegum hugmyndum af sínum ógurlegum kræsingum sem lesendur geta spreytt sig á.

Gróðurhúsið umbreytist í köngulóarhús

Hún elskar hrekkjavökuna og allt annað sem brýtur upp hversdagsleikann á veturna.

„Mér er alveg sama þótt þetta sé ekki aldagömul hefð á Íslandi. Mín skoðun er að við eigum að taka öllu skemmtilegum dögum og viðburðum fagnandi, við þurfum alveg á þessu að halda í myrkrinu,“ segir Hildur með bros á vör.

„Í ár ætla ég að búa til algjöran hryllingsgarð og ætla að gefa þar nammi. Gróðurhúsið umbreytist í köngulóarhús og hræðilegir draugar og nornir svífa yfir garðinum á pergólunni, heiti potturinn verður með töfraseiði þar sem hauskúpur og salamöndruaugu fljóta um. Grafreitur með hræðilegum beinum verður líka á staðnum,“ segir Hildur grafalvarleg.

Eru mörg ár síðan þú byrjaðir að halda upp á Hrekkjavökuna?

Ætli ég hafi ekki byrjað um leið og þetta fór að vera vinsælt hér heima en við heimsóttum alltaf Hlíðarnar en mamma býr þar og hún fór fljótlega að skreyta og gefa nammi. Nú er okkar hverfi, Hvassaleiti og 103 Reykjavík orðið mjög öflugt í hrekkjavökunni og margir sem skreyta og gefa nammi. Ég vil endilega hvetja íbúana í mínum hverfi, 103, koma og biðja um grikk og gott. Ég hlakka til að taka á móti þessum furðuverum sem verða á ferðinni þann 31. október næstkomandi.“

Safnar þú hrekkjavökudóti?

„Ég bæti alltaf í safnið á hverju ári, áður fyrr keypti ég alltaf skraut í útlöndum en nú eru búðir eins og Partýbúðin með svo mikið úrval.“

Farið þið í búninga og sláið upp hrekkjavökupartí með hræðilegum kræsingum?

„Heldur betur, meira að segja maðurinn minn er búinn að kaupa sér búning. Hann langaði mest til að vera í grænum heilgalla en sá var því miður ekki til í hans stærð,“ segir Hildur og hlær.

„Hrekkjavökuveitingar eru þær allra skemmtilegustu því það gengur allt út á að breyta og setja fram veitingar á nýstárlegan hátt sem mér finnst mun skemmtilegra en til dæmis að baka.“

„Ég verð góð norn“

Hvað ætlið þið að vera í ár?

„Ég verð góð norn og sú yngsta líka, miðjan mín verður Wednesday og sú elsta ætlar að vera Sidney Prescott úr Scream myndunum og maðurinn minn verður einhver óskilgreind furðuvera eins og honum er einum lagið.“

Skemmtilegir pinnarnir sem Hildur hefur útbúið og stungið í graskerið.
Skemmtilegir pinnarnir sem Hildur hefur útbúið og stungið í graskerið. mbl.is/Hákon

Hvaða ógurlegu kræsingar ætlar þú að bjóða upp á?

„Veitingunum verður skipt upp í fullorðins- og barnaveitingar. Ég fann svo sæt lítil grasker í Partýbúðinni sem ég setti mismunandi pinna með hræðilegum sætindum í. Ég gerði pöddur úr úr döðlum og lakkrís, nornahatt úr Oreo kexi eða Herseys kossi ofan á, leðurblöku úr Reeses cup með vængjum úr Oreo kexi og svo keypti ég sætt kökuskraut í Partýbúðinni sem ég límdi einfaldlega á Oreo kex.

Hér eru bæði nornahattar og leðurblökur í sinni frumlegustu mynd.
Hér eru bæði nornahattar og leðurblökur í sinni frumlegustu mynd. mbl.is/Hákon

Svo gerði ég appelsínugult kakó úr hvítu súkkulaði frá Good Good sem ég blandaði út í mjólk og appelsínugulan matarlit, ofan á það setti ég kóngulóarvef úr sykurpúðum.“

Appelsínugula kakóið skreytt með köngulóarvef er mikið prýði til að …
Appelsínugula kakóið skreytt með köngulóarvef er mikið prýði til að bjóða upp á í hrekkjavökupartíinu. mbl.is/Hákon

Graskerin heilla Hildi og þau fá að njóta sín á hennar heimili í margs konar formum.

„Ég fann svo sætt lítið grasker í Krónunni sem mér datt í hug að setja pinna af draugapaprikum og ostadraum í ásamt fallegum haustlegum blómum. Með því verður síðan uppáhaldshaustkaffið mitt með graskeri og graskerskryddi.“

Hildur ætlar að bjóða upp á ógurlega haustkaffi sem ber …
Hildur ætlar að bjóða upp á ógurlega haustkaffi sem ber keim af graskeri. mbl.is/Hákon

Hræðilegar hrekkjavökukræsingar

Hildur gefur hér lesendum Matarvefsins nokkrar skemmtilegar hugmyndir af hrekkjavökukræsingum sem upplagt er að prófa sig áfram með. Hildur er sniðugri en flestir þegar kemur að því að galdra fram einfaldar og flottar veitingar í þema formi líkt og þessar hræðilegur hrekkjavökukræsingar.

Ekki má gleyma blóðinu.
Ekki má gleyma blóðinu. mbl.is/Hákon

Hér má sjá handbragð Hildar þegar hún gerir köngulóarkakóið sitt.

Hrekkjavökukræsingar Hildar

Appelsínugult köngulóarkakó

Fyrir 2

  • 250 ml mjólk
  • 2 msk. súkkulaðismyrja, t.d. frá Good Good
  • Appelsínugulur matarlitur eftir smekk
  • Sykurpúðar eftir smekk fyrir köngulóarvefinn

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita mjólkina í potti.
  2. Bætið út í mjólkina súkkulaðismyrju.
  3. Bætið síðan við appelsínugulu matarlit eftir smekk.
  4. Hellið síðan í bolla eða glös eftir smekk og útbúið köngulóarvefinn.
  5. Setjið sykurpúða í örbylgjuofn í um það bil 15 sekúndur.
  6. Setjið á ykkur hanska og kremið sykurpúðann á milli handanna, lófanna, þá togast hann í sundur eins og köngulóarvefur.
  7. Leggið síðan yfir appelsínugula kakóið yfir bollana

Ógurlegt haustkaffi

  • 5 skot Starbucks Pikes Places kaffi
  • 500 ml haframjólk
  • 2-4 msk. graskers puree
  • 2 tsk. pumpkin spice krydd
  • Hunang ef vill eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að gera 5 skot af kaffinu og hellið í stóra könnu.
  2. Bætið við haframjólk.
  3. Blandið út í blönduna graskers puree og pumpkin spice kryddi.
  4. Setjið aðeins hunang út í ef vill.
  5. Blandið þessu vel saman svo kryddið fljóti ekki yfir efst í blöndunni.
  6. Smakkið þetta til og vert að huga að því að smekkur fólks er misjafn þegar kemur að kryddi, hvort fólk vill mikið eða lítið kryddað kaffi.
  7. Setjið blönduna í stóra könnuna eða svona graskerskönnu líkt og Hildur er með.
  8. Mikið er til af alls kyns hrekkjavöku vörum í Partýbúðinni og matvöruverslunum landsins í dag og upplagt að skoða og finna skemmtileg ílát ef vill.

Nornahattar

  • 1-2 pk. Oreo kex
  • 1 pk. Hersey súkkulaði
  • Kökuskraut eftir smekk
  • Trépinnar

Aðferð:

  1. Takið til trépinnana og stillið upp Oreo kexkökum í þeim fjölda sem þið ætlið að gera.
  2. Byrjið á því að stinga trépinna ofur varlega í miðjuna á Oreo kexi, megið alls ekki gera það of hratt þá brotnar kexið.
  3. Endurtakið þetta í eins margar kexkökur og þið ætlið að bera fram.
  4. Hitið síðan Hersey súkkulaði með því að byrja á að sjóða vatn og hella vatninu í þægilegt ílát.
  5. Setjið síðan súkkulaðið í umbúðunum ofan í vatnið þangað til að það er bráðnað.
  6. Klippið þá smá gat á umbúðirnar utan um súkkulaði og notið sem hálfgjöra túbu.
  7. Setjið súkkulaðið á hliðina sem snýr upp og festið í miðjuna með Hersey súkkulaðikoss.
  8. Setjið síðan kökuskraut í bráðið súkkulaðið.
  9. Berið fram á skemmtilegan hátt. Til dæmis í litlum graskersílátum.
  10.  eða glösin sem þið kjósið að bera drykkinn í.
Skemmtileg framsetning.
Skemmtileg framsetning. mbl.is/Hákon
Hildur kann svo sannarlega að setja veitingar í skemmtilegan búning.
Hildur kann svo sannarlega að setja veitingar í skemmtilegan búning. mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka