Hauskúpuaagúrkusalatið á eftir slá í gegn

Þetta er ógurlega girnilegt hauskúpuagúrkusalat.
Þetta er ógurlega girnilegt hauskúpuagúrkusalat. Samsett mynd

Hér er snilldarhugmynd af Hauskúpuagúrkusalati til bera fram á hrekkjavökunni sem framundan er og slá í gegn. Samfélagsmiðlastjarnan Sine Siemkowicz sem heldur úti Instagramsíðunni foodbites á heiður af þessu frábæru salati en hún er sniðugust allra að búa til frumlega og flotta rétti sem auðvelt er að gera.

Eins og sjá má í myndbandinu á Instagramsíðunni hennar er þetta sáraeinfalt. Gúrkusneiðarnar er skornar út eins og hauskúpur og þær síðan þvegnar og þurrkaðar. Loks gerir hún þessa dásamlegu dressingu sem á, án efa, eftir að slá gegn. Það gæti skollið á nýtt gúrkuæði.

Á síðunni hennar má finna fleiri skemmtilegar hrekkjavökukræsingar sem tekur stuttan tíma að útbúa og þær eru líka barnvænar.

Hauskúpuagúrkusalat

  • 1 stk. agúrka
  • Gróft salt eftir smekk
  • Hauskúpudressing, uppskrift fyrir neðan.

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera agúrkuna í sneiðar.
  2. Stingið síðan út augu á hverja sneið, til dæmis með stálröri.
  3. Takið síðan hníf og skerið í gúrkuna fyrir neðan augun líkt og gert er í myndbandinu.
  4. Leggið síðan agúrkusneiðarnar á disk og stráið grófum saltflögum eftir smekk og látið liggja í um það bil 10 mínútur til að draga rakann út.
  5. Þvoið og þurrkið hauskúpurnar og raðið aftur fallega á djúpan disk eða fat og dreifið síðan hauskúpudressinguna yfir.
  6. Látið liggja í dressingunni í 30 mínútur og berið svo fram.
  7. Berið síðan fram á skreytt borð í anda hrekkjavökunnar.
  8. Gefið hugmyndafluginu lausan tauminn og skreytið eins og ykkur langar til.

Hauskúpudressing

  • 3 msk. hrísgrjónavínsedik
  • 1 msk. hunang
  • Smá af chiliflögum
  • Sjávarsalt eftir smekk
  • Pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið vel saman.
  2. Geymið í kæli fyrir notkun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert