Þetta þarftu að eiga í eldhúsinu

Ólöf Ólafsdóttir eftirréttadrottningin knáa segir að þetta séu bestu vinir …
Ólöf Ólafsdóttir eftirréttadrottningin knáa segir að þetta séu bestu vinir þínir í eldhúsinu. Samsett mynd

Eftirréttadrottningin, Ólöf Ólafsdóttir, konditor og fyrrverandi meðlimur íslenska kokkalandsliðsins, gefur lesendum matarvefsins góð bakstursráð í vetur. Ráðin hennar Ólafar munu nýtast þeim sem hafa gaman af því að baka, skreyta kökur og galdra fram eftirrétti. Nú styttist óðum í aðventuna og jólin og þá getur gott að vera vel undirbúinn.

Ólöf Ólafsdóttir eftirréttadrottning Íslands gefur lesendum góð húsráð.
Ólöf Ólafsdóttir eftirréttadrottning Íslands gefur lesendum góð húsráð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þínir bestu vinir í eldhúsinu

„Þínir bestu vinir í eldhúsinu vigt, hitamælir, töfrasproti og palet-spaði. Ef þú vilt tryggja að allur bakstur og eftirréttagerð gangi sem best þá eru þetta ómissandi hlutir að eiga.

Þinn allra besti vinur í eldhúsinu er vigtin, hún gerir þér kleift að gera hvaða uppskrift sem er upp á tíu, ég myndi alltaf passa mig að hafa vigtina sem nákvæmasta.

Síðan er það hitamælirinn, ég gæti mögulega komist hjá því að vinna með hitamæli þegar kemur að því að vinna með súkkulaði eða krem, en ég tel að maður þurfi að minnsta kosti 20-30 ára reynslu til að hitta á hið fullkomna og rétta hitastig. Margar uppskriftir krefjast þess að notast sé við hitamæli og mæli ég alltaf með að hafa einn til taks í skúffunni.

Loks er það töfrasprotinn. Ég nota hann í flestalla ganache, curd eða creme angles, hann gerir það að verkum að blandan verður alltaf silkimjúk.

Að lokum er það palet-spaðinn. Ef þig langar í slétta áferð á köku þá er palet-spaðinn klárlega málið, auðveldur til að vinna með og gefur þér alltaf hina fullkomnu útkomu,“ segir Ólöf.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert