Dai Phat Trading ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Canton noodles (Pansit Kanton) að því segir í tilkynningu.
Ástæða innköllunar
Varan er innkölluð vegna óleyfilegs aukefnis, E102 (tartrazine) í vöru.
Hver er hættan?
Engin hætta tilgreind.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: UFC
Vöruheiti: Canton noodles
Lotunúmer: LOT-108735
Geymsluþol: Best fyrir: 17.1.2025
Strikamerki: 014285000235
Nettómagn: 227 g
Framleiðandi: NutriAsia
Framleiðsluland: Filippseyjar
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Dai Phat Trading ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík
Dreifing:
Dai Phat Trading ehf (Asian Super Market), Faxafeni 14
Leiðbeiningar til neytenda
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Dai Phat Trading ehf í númerið 765-2555.