Birna G. Ásbjörnsdóttir er matgæðingur af lífi og sál. Hún hefur mikla ástríðu fyrir því að matreiða og nýtur sín allra best í eldhúsinu á heimili sínu á Eyrarbakka, í Smiðshúsum. Hún vandar líka valið þegar það kemur að því að velja hráefni og eitt af því sem hún hefur dálæti af eru sætkartöflupítsur. Hún notar sætar kartöflusneiðar í botninn sem kemur ótrúlega vel út.
Þetta eru mini pítsur og sonur hennar, Nói, elskar þessar og er iðinn að panta þær í matinn þegar líður að helgi. En það er ekki bara Nói sem elskar þessar pítsur heldur allir þeir sem hafa fengið að smakka þessar hjá Birnu kolfalla fyrir þeim og biðja iðulega um uppskriftina.
Það besta við þessar pítsur er að þær eru glútenlausar. Birna deilir hér með lesendum Matarvefsins uppskrift af þessum ómótstæðilega girnilegu sætkartöflupítsum sem steinliggja á föstudagskvöldi.
Ómótstæðilega girnilega sætkartöflupítsur úr smiðju Birnu.
mbl.is/Sjöfn
Sætkartöflupítsur
- 2-3 stk. sætar kartöflur
- bragðmikil tómatsósa að eigin vali
- óreganó, þurrkað eða ferskt magn eftir smekk
- rjómaostur, hreinn, magn eftir smekk
- parmesan-ostur, rifinn og magn eftir smekk
- hráskinka, magn eftir smekk
- rósmarín, ferskt, magn eftir smekk
- græn ólífuolía, eftir smekk
- grófmalaður svartur pipar eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 200°C.
- Skerið sætu kartöflurnar í 1 cm þykkar sneiðar og setjið í ofnskúffu, gott að setja olíu undir eða smjörpappír.
- Setjið sneiðarnar inn í ofn og bakið við 200°C í 10-15 mínútur eða þar til þær eru orðnar mjúkar.
- Takið út og setjið tómatsósu, óreganó, rjómaost og rifinn parmesan-ost á hverja sneið eftir smekk yfir.
- Bakið í 5 mínútur til viðbótar eða þar til osturinn er bráðinn.
- Takið út og setjið ólífuolíu, hráskinku og ferskt rósmarín yfir hverja sneið.
- Gott að strá grófum svörtum pipar yfir í lokin.
- Berið fram á fallegu viðarbretti og bjóðið upp á ferskt salat að eigin vali með.