Undursamlega góð skyrmús með lakkrískremi og rósavínskrapi

Ljósmyndir/Hákon Björnsson

Gabrí­el Krist­inn Bjarna­son mat­reiðslumaður og landsliðskokk­ur gaf út kokka­bók­ina Þetta verður veisla á dög­un­um. Bók­in er stút­full af ein­föld­um eðalréttum og Gabríel kann að kveikja í bragðlaukunum með skemmtilegu samsetningum.

Þar er meðal ann­ars að finna þessa æðislegu upp­skrift af Skyrmús með lakkrískremi og rósavínskrapi. Þetta er hinn fullkominn eftirréttur til að bjóða upp á í næsta matarboði.

Skyrmús, lakkrískrem og rósavínskrap

Skyrmús

  • 150 g hvítt súkkulaði
  • 200 g skyr
  • 250 g rjómi
  • 1 stk. matarlím

Aðferð:

  1. Byrjið á því að sjóða rjómann og bætið síðan matarlíminu saman við.
  2. Gott er að passa að rjóminn þarf bara að ná suðu, ekki meira en það.
  3. Bræðið súkkulaðið í potti við vægan hita og hellið síðan rjómanum yfir og blandið vel saman.
  4. Blandið skyrinu saman við í lokin og setjið músina í sprautupoka og inn í kæli.

Lakkrískrem

  • 100 g lakkrísbrjóstsykur að eigin vali
  • 235 g mjólk
  • 4 eggjarauður
  • 30 g sykur
  • 1 tsk. salt
  • 40 g maizena-mjöl

Aðferð:

  1. Byrjið á að bræða brjóstsykurinn í mjólk í potti.
  2. Leyfið brjóstsykrinum og mjólkinni að malla saman við vægan hita.
  3. Blandið saman sykri og eggjum með písk og þeytið vel.
  4. Bætið síðan maizena-mjölinu út í og pískið saman við eggin.
  5. Hellið örlitlu af mjólkurblöndunni út í eggjablönduna til að blanda saman svo að eggjablandan verði ekki sett of köld í pottinn.
  6. Bætið loks öllum hráefnunum út í pottinn og pískið blönduna saman á miðlungshita upp í 82°C eða þar til kremið verður bæði þykkt og dúnmjúkt.
  7. Kælið kremið í ísskáp áður en það er sett í sprautupoka.

Rósavínskrap

  • 400 g rósavín
  • 50 g sítrónusafi
  • 120 g sykur
  • 1 stk. matarlím

Aðferð:

  1. Byrjið á að sjóða saman rósavín og sykur í potti.
  2. Leggið matarlímið í sítrónusafann þar til það leysist upp.
  3. Blandið síðan matarlíminu og sítrónusafanum saman við blönduna í pottinum.
  4. Setjið að lokum allt saman í ílát með loki og frystið þar til blandan verður orðin alveg frosin.
  5. Best er að gera þetta daginn áður svo að krapið sé frosið í gegn, þegar það er rifið með gaffli.

Samsetning:

  1. Til að setja réttinn saman, sprautið lakkrískreminu í botn á fallegri skál.
  2. Sprautið síðan skyrmúsinni ofan á lakkrískremið.
  3. Rífið niður frosna rósavínið með gaffli þangað til krap myndast og bætið ofan á topp skyrmúsarinnar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert