Jólabrauðið Christ Stollen sem amma hans Finns bakaði alltaf

Finnur Prigge bakarí og meðlimur í landsliðið íslenskra bakara nýtur …
Finnur Prigge bakarí og meðlimur í landsliðið íslenskra bakara nýtur þess að baka fyrir jólin. mbl.is/Eyþór Árnason

Finnur Prigge, ungi bakarinn knái og meðlimur í bakaralandsliði Íslands á heiðurinn af uppskriftinni fyrir helgarbaksturinn. Hann býður lesendum upp á dýrðlegt jólabrauð sem ber heitið Christ Stollen og á sér allt aftur til miðalda í Þýskalandi.

„Amma mín, Ríta Prigge Helgason, var frá Kiel í Þýskalandi og saman bökuðum við alltaf Christ Stollen fyrir jólin. Ég á góðar minningar frá þeim tíma og þetta brauð yljar ávallt. Uppskriftin lærði amma frá mömmu sinni og mögulega á uppskriftin enn lengri sögu aftur í tímann í fjölskyldunni hennar,“ segir Finnur.

„Ég hef breytt uppskriftinni smávægilega, til að mynda setti amma ekki marsipan inn í brauðið en við tókum það upp á síðustu árum.“

Upphaflega bakað sem einfalt jólaneyslubrauð

Vert er líka að minnast á það að Christ stollen brauðið, á rætur sínar að rekja til miðalda í Þýskalandi og var upphaflega bakað sem einfalt jólaneyslubrauð með fábrotnu hráefni. Seinna meir var það þróað í ríkulegt jólabrauð með ávöxtum, hnetum og sykruðu ysta lagi, sem átti að tákna Jesúbarnið vafið í klæði.

Sjáið Finn gerir brauðið!

@finnur_prigge Þýskt Christstollen🎄uppskrift kemur á Mbl.is á morgun😁 #fyp #christstollen #christmasbaking #germany #iceland ♬ original sound - Christmas Countdown🤶
Girnilegt jólabrauð sem lokkar augað.
Girnilegt jólabrauð sem lokkar augað. Ljósmynd/Finnur

 Christ Stollen

  • 500 g hveiti                                          
  • 200 g sykur      
  • 175 g smjör     
  • 250 g skyr, hreint          
  • 125 g kúrínur  
  • 125 g rúsínur  
  • 125 g möndlur, hakkaðar        
  • 40 g súkkat        
  • 4 tsk. lyftiduft
  •  2 egg   
  • 100 g marsipan              
  • 1 tsk. sítrónudropar   
  • 1 tsk. kardimommudropar    
  • 1 tsk. vanilludropar    
  • 1 tsk. möndludropar
  • 4 dropar bitrir möndludropar                
  • salt á hnífsoddi
  • kardimommuduft á hnífsoddi
  • múskat á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 175°C hita.
  2. Setjið hveiti á borð, setjið síðan sykur í miðjuna ásamt eggjum, skyri og dropum.
  3. Setjið lyftiduft á hveitiröndina ásamt klípum af smjöri.
  4. Setjið að lokum alla ávextina í miðjuna.
  5. Blandið þessu saman með því að saxa með hnífi í deigið nokkrum sinnum þannig að allt hráefnið blandist saman. Hnoðið deigið síðan hratt saman og skiptið í tvo hluta. 
  6. Formið í brauð og setjið marsipan rúllu í miðjuna.
  7. Blandið einu eggi og 50 ml af mjólk saman og penslið yfir brauðin og skerið einn skurð þvert yfir miðjuna. 
  8. Bakið síðan brauðin í 15 mínútur við 170 C°  hita og lækkið þá hitann í 150-160 C° og bakað í eina klukkustund í viðbót.
  9. Penslið með smjöri og sigtið flórsykur yfir þrisvar sinnum á 30 mínútna fresti. 
  10. Geymið brauðin síðan í kæli að lágmarki í eina viku áður en brauðin eru borin fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert