Hin klassíska, gamla góða máltíð, lambakjöt með öllu tilheyrandi, á vel við á sunnudagskvöldi. Lambabógur nýtur enn vinsælda og nú þegar líður að jólum hugsa sumir um lambabóg. Það er leyfilegt að taka forskot á sæluna og prófa sig áfram með hægeldaðan lambabóg og leyfa jólabragðinu að njóta sín. Hér er að ferðinni klassísk góð uppskrift af jólakrydduðum lambabóg sem borinn er fram með sósu, ristuðum maís og ofnbökuðu smælki. Uppskriftina er að finna á uppskriftavefnum Íslenskt lambakjöt.
Jólakryddaður lambabógur borinn fram með sósu, ristuðum maís og ofnbökuðu smælki
Jólakryddaður lambabógur
- 1 stk. lambabógur
- 2 msk. matarolía
- salt og pipar eftir smekk
- 1 kanilstöng
- 4 negulnaglar
- 1 msk. reykt paprikuduft
- 2 kvistar ferskt timían
- 1,5 l vatn
- 1 l lambaseyði frá Bone & Marrow
- 1 stk. hvítlauksgeiri
- 1 msk. púðursykur
- 1 stk. laukur
- 5 stk. sveppir
Aðferð:
- Stillið ofninn á 90°C.
- Nuddið bóginn með salti og brúnið á vel heitri pönnu með olíunni á háum hita í 3-5 mínútur á hvorri hlið.
- Setjið bóginn í djúpa ofnskúffu og með restinni af því sem fram kemur í uppskriftinni, breiðið yfir með álpappír og eldið í 5 klukkustundir.
Ristaður maís
- 4 stk. foreldaðir maísstönglar
- 100 g smjör
- 50 ml olía
- íslenskt sjávarsalt eftir smekk
Aðferð:
- Penslið maís stöngla með olíunni og stráið salti yfir.
- Grillið eða steikið á pönnu vel á öllum hliðum áður en þeir er smurðir með smjörinu.
Sósa
- Steikingarsafi/soð
- 50 g kalt smjör
Aðferð:
- Sigtið safann úr ofnskúffunni í pott þegar lambakjötið hefur verið eldað, haldið kjötinu heitu.
- Fleytið megnið af fitunni af og látið látið vökvann sjóða niður um helming.
- Takið pottinn af eldavélinni og pískið smjör saman við í litlum bitum og bragbætið með salti og pipar eftir smekk.
Ofnbakað smælki með sýrðum rjóma
- 300 g kartöflusmælki
- 2 hvítlauksgeirar
- 50 g ólífuolía
- íslenskt sjávarsalt
- 100 ml sýrður rjómi
- 10 ml sítrónusafi
- 1 tsk. hunang
Aðferð:
- Hitið ofn í 190°C.
- Sjóðið kartöflur þar til eru mjúkar, sigtið vatnið frá og setjið í ofnskúffu.
- Bætið við olíu, hvítlauk og salti eftir smekk.
- Bakið í 25 mínútur.
- Blandið sýrða rjómanum, sítrónusafanum og hunanginu saman í skál og bragbætið með salti eftir smekk.
- Veltið kartöflunum uppúr blöndunni og berið fram.