Leyndardómurinn á bak við Múlakaffi

Þríeykið, Eyþór Rúnarsson yfirkokkur, Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliðið íslenska kokkalandsliðsins …
Þríeykið, Eyþór Rúnarsson yfirkokkur, Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliðið íslenska kokkalandsliðsins og Ari Sylvain Posocco skipa veisluteymið hjá Múlakaffi. mbl.is/Arnþór

Jóhannes Stefánsson þarfnast engrar kynningar við. Þorrakóngurinn í Múlakaffi sem hefur sett svip sinn á innlendan veitingamarkað í áratugi og er ekki síður þekktur fyrir hnyttni í tilsvörum og litríkan persónuleika. 

Enda hefur Jóhannes komið víða við og eflaust fáir Íslendingar sem hafa ekki bragðað á veisluföngum Múlakaffis á lífsleiðinni.

Múlakaffi var stofnað árið 1962 af föður Jóhannesar, Stefáni Ólafssyni, á lóð í Hallarmúla 1 þar sem þá var nær engin byggð, aðeins nokkrir sveitabæir og malargötur. Nú rúmum 60 árum síðar er sami veitingasalurinn fullur í hádeginu af fólki af öllum þjóðfélagsstigum sem kunna að meta hollan og kjarngóðan heimilismat.

„Markmið Múlakaffis var einfalt. Pabbi byggði staðinn á þeirri reynslu sem hann hafði af því að elda hollan og kjarngóðan heimilismat fyrir svangt verkafólk í mötuneytum stærstu fiskvinnslufyrirtækja landsins, alvöru mat fyrir alvöru fólk,“ segir Jóhannes. Það má því segja að það sé leyndardómurinn bak við velgengni Múlakaffis.

Stefán varð bráðkvaddur árið 1989 og þá tók Jóhannes við rekstrinum og hefur rekið Múlakaffi ásamt fjölskyldu sinni allt til dagsins í dag.

Framkvæmdastýran Guðríður M. Jóhannesdóttir hefur tekið við keflinu af pabba …
Framkvæmdastýran Guðríður M. Jóhannesdóttir hefur tekið við keflinu af pabba sínum þó hann sé enn að og hefur ástríðu fyrir starfinu. Ljósmynd/Aðsend

„Pabbi var stórhuga og fór sínar eigin leiðir. Hann setti strax á fyrsta ári rekstrarins á laggirnar veisluþjónustuna sem hefur vaxið og dafnað í gegnum áratugina og er í dag stærsti þátturinn í rekstrinum. Svo fór hann af stað með þorramatinn árið 1965 og hann hefur líklega aldrei verið vinsælli en akkúrat í dag. Þorrablótin stækka með hverju árinu sem líður, við erum marga mánuði að verka matinn og undirbúa þorrann,“ segir Jóhannes kíminn.

Kynslóðaskipti og nýjar áskoranir

Þrátt fyrir kjarngóðar íslenskar hefðir í matargerð hefur Múlakaffi þróast og vaxið á síðustu áratugum. Veisluþjónustan er sem áður sagði stærsti þátturinn í rekstrinum og er mikill metnaður lagður í að gera hverja veislu sem glæsilegasta, bæði hvað varðar veisluföngin og framsetninguna. Jóhannes sjálfur er ennþá á fleygiferð þó svo að Guðríður dóttir hans sé tekin við framkvæmdastjórninni. Jón Örn, sonur Jóhannesar, er enn fremur afbragðskokkur og stýrir fjölbreyttum og krefjandi veitingaverkefnum sem fyrirtækið tekur að sér.

Þorrakóngurinn Jóhannesi Stefánssyni, Jóa í Múlakaffi, hefur tekist að láta …
Þorrakóngurinn Jóhannesi Stefánssyni, Jóa í Múlakaffi, hefur tekist að láta fjölskyldufyrirtækið ganga í áratugi og það blómstrar enn í dag. Ljósmynd/Aðsend

„Við fjölskyldan erum saman í rekstrinum og elskum það sem við gerum, pabbi er ennþá á fleygiferð þó svo að ég hafi formlega tekið við framkvæmdastjórninni. Pabbi er svolítið alla leið-týpa eins og sagt er og það eru eiginlega engin skil á milli fyrirtækisins og einkalífsins,“ segir Guðríður og brosir.

Múlakaffi hefur stöðugt leitað leiða til þess að þróa reksturinn og mæta nýrri eftirspurn á innlendum markaði. Þegar erlendum kvikmyndaverkefnum tók að fjölga hér á landi fjárfesti Múlakaffi í færanlegum veisluþjónustubúnaði, gríðarlega öflugum sérhæfðum veitingatrukkum sem fara hvert á land sem er og færa leikurum og tökuliði hágæðamat á upptökutímabilinu.

„Það hefur verið mikið ævintýri að þjónusta kvikmyndamarkaðinn og eitthvað sem ég hef haft virkilega gaman af því að sinna. Þessar stórstjörnur geta ekki verið að borða sjoppusamlokur alla daga, þær þurfa að fá alvöru mat. Þar komum við sterk inn og erum með mikla sérstöðu,“ segir Jóhannes með bros á vör.

Veisluþjónusta á heimsmælikvarða

Nýverið bárust fréttir af því að einn af mest spennandi matreiðslumönnum yngri kynslóðarinnar, Ísak Aron Jóhannsson, hefði gengið til liðs við veisluþjónustu Múlakaffis. Ísak hefur þrátt fyrir ungan aldur náð eftirtektarverðum árangri í fagi sínu og er á sínu öðru tímabili sem fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins.

„Ég gæti ekki verið ánægðari með að ganga til liðs við Múlakaffi. Ég er að fara að starfa með sannkölluðu draumateymi og ætla að nýta hverja mínútu til að læra meira og bæta við þekkingu mína, vonandi get ég líka komið með eitthvað nýtt og spennandi að borðinu,“ segir Ísak Aron sem er orðinn mjög spenntur fyrir komandi tímum.

Landsliðsfyrirliðinn Ísak Aron Jóhannsson er ánægður með að vera kominn …
Landsliðsfyrirliðinn Ísak Aron Jóhannsson er ánægður með að vera kominn í draumateymið hjá Múlakaffi og horfir björtum augum til framtíðar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Það er gaman frá því að segja að hjá Múlakaffi hittir núverandi landsliðsfyrirliði eldri landsliðsfyrirliða, en yfirkokkur Múlakaffis er einmitt Eyþór Rúnarsson, einn af ástsælustu kokkum okkar landsmanna. Eyþór var einmitt fyrirliði kokkalandsliðsins á árunum 2008-2011.

En hvaða hæfileikum þarf góður yfirkokkur að búa yfir?

„Ég myndi segja að það að vera sífellt að þróast, sífellt að leita nýrra leiða til að koma viðskiptavinum á óvart, sé eitt mikilvægasta hlutverk yfirkokks. Þess vegna er frábært að fá Ísak í okkar lið. Hann kemur með ferska strauma inn og það er það sem við viljum. Vera fyrstir með nýjungar og vera leiðandi í leiknum, þannig höldum við okkur á tánum og njótum þess sem við gerum,“ segir Eyþór.

Yfirkokkurinn Eyþór Rúnarsson var fyrirliði kokkalandsliðsins á árunum 2008-2011 og …
Yfirkokkurinn Eyþór Rúnarsson var fyrirliði kokkalandsliðsins á árunum 2008-2011 og býr yfir mikilli reynslu. Hann segir að mikilvægast sé að vera stöðugt að þróa sig áfram sem kokkur. mbl.is/Arnþór

Á síðasta ári tók Múlakaffi við rekstri eins rómaðasta veislu- og viðburðastaðar landsins, Sjálands í Garðabæ. Ófá brúðkaup, afmælisveislur og árshátíðir hafa farið fram í þessum glæsilegu húsakynnum við sjávarsíðuna. „Sjáland er frábær viðbót við framboð okkar á veislu- og veitingaþjónustu. Húsnæðið er sérhannað fyrir veislur og viðburði af öllum gerðum og hefur nánast verið fullbókað síðan við tókum við rekstrinum. Við höfum líka bryddað upp á þeirri nýjung að vera með reglulega viðburði í Sjálandi sem hefur verið frábærlega tekið af Garðbæingum og öðrum höfuðborgarbúum,“ segir Guðríður.

Kokkurinn Ari Sylvain Posocco nýtur þess að takast á við …
Kokkurinn Ari Sylvain Posocco nýtur þess að takast á við nýjar áskoranir í eldhúsinu og koma viðskiptavinunum stöðugt á óvart. mbl.is/Arnþór

Ævintýrið í Úthlíð

Lúxusferðamennska er hugtak sem þótti framandi hérlendis fyrir ekki svo löngu en hefur rækilega fest sig í sessi á undanförnum árum. Múlakaffi hefur gert sig gildandi á þeim markaði svo um munar en fyrirtækið á og rekur Eldar Lodge South, lúxushótel í Úthlíð í Biskupstungum, sem var upprunalega sumarbústaður fjölskyldunnar, en með mikilli elju og natni hefur Jóhannes byggt upp einstakan áfangastað þar sem erlendir lúxusferðamenn njóta aðbúnaðar og veitinga á heimsmælikvarða.

„Eldar Lodge hefur verið mikið ævintýri og sér ekki fyrir endann á því. Það hefur ótrúlegasta fólk ferðast til Íslands þó að það fari lítið fyrir því. Það er einmitt eitt af lykilatriðum lúxusferðamennskunar, að viðskiptavinir geti notið alls sem Ísland hefur upp á að bjóða, í friði og ró,“ segir Guðríður.

Af fenginni reynslu sér Múlakaffi mikið sóknarfæri í lúxusferðamennsku og hyggur á frekari vöxt í greininni. Nýverið lauk framkvæmdum við annað hótel sem hefur fengið nafnið Eldar Lodge North og er staðsett rétt utan Akureyrar.

Hvernig gengur að þjónusta og elda mat fyrir erlendar stórstjörnur?

„Það getur vissulega verið krefjandi en við erum vel undirbúin og með frábært teymi af þjónum og matreiðslusnillingum. Annars nálgast ég þetta bara eins og allt annað, þetta er venjulegt fólk eins og við hin. Bearnaise-sósan er ekkert öðruvísi í Hollywood en í Úthlíð,“ segir Jóhannes og hlær.

Hamagangur á haustin

Haustið er háannatími hjá Múlakaffi, fyrirtæki og einstaklingar farin að huga að jólunum og öllu sem því fylgir. Skatan góða er komin í kæsingu og til stendur að halda skötuveislu í Sjálandi í ár. Skötuveislan verður nánar auglýst síðar en gera má ráð fyrir mikilli jólastemningu með tilheyrandi skötulykt og hátíðarblæ. „Við erum alltaf með skötuveislu hér hjá okkur í Hallarmúlanum, en okkur langar til að nýta þessi frábæru salarkynni okkar í Sjálandinu og halda skemmtilega skötuveislu með öllu tilheyrandi, lifandi tónlist og skemmtidagskrá,“ segir Guðríður að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert