Fiskur er herramannsmatur og ljúft að njóta þess að borða fisk í miðri viku. Þessi bleikja er í undursamlega góðri sesam- og engifermaríneringu með taílensku ívafi. Heiðurinn af þessari uppskrift á Friðrik V. en uppskriftina gerði hann fyrir Fiskidaginn mikla árið 2023 sem var síðasta árið hátíðin var haldin.
Bleikja í taílenskri sesam- og engifermaríneringu
Fyrir 4
- 4 stk. 180-200 g bleikja, skorin í stykki
- 1 dl La Choy súrsæt sósa eða önnur að eigin vali
- 2 msk. sesamfræ
- 1 msk Blue Dragon sesamolía
- 1 dl Blue Dragon Sweet Thai Chilli Dipping Sauce
- 1 msk Heinz HP Sósa
- 1 cm ferskur engifer
- 1 stk. límóna (safi og börkur)
- 1 stk. hvítlauksgeiri, fínt rifinn
Aðferð:
- Blandið saman hráefnunum í skál og marínerið fiskinn.
- Grillað eða bakað í ofni í um það bil 10-14 mínútur á hvorri hlið, eða þar til kjarnahitinn er 68-70°C
- Berið fram með hrísgrjónum, salati og sweet chili sósu.