Síðustu daga hefur kuldaboli látið á sér kræla hjá landsmönnum og þá er ekkert betra en að sitja inni í huggulegheitum með ljúffengan heitan drykk sem yljar. Finnur Prigge, ungi bakarinn knái og meðlimur í bakaralandsliði Íslands, á heiðurinn af uppskriftinni.
Finnur Prigge er afar hæfileikaríkur bakari og líka góður kokkur. Hann hefur ástríðu fyrir því að töfra fram girnilegar kræsingar fyrir hátíðirnar.
mbl.is/Eyþór Árnason
Hann veit fátt betra en að bjóða sínum bestu upp á heitt jólasúkkulaði á aðventunni og eiga notalegar stundir með þeim við kertaljós.
Sjáið hvernig Finnur fer að hér:
Heitt jólasúkulaði með heimagerðum sykurpúða
Sykurpúði
- 180 g vatn
- 330 g sykur
- 120 g kornsíróp
- 1 stk. vanillustöng
- 10 stk. matarlím
- 300 g vatn fyrir matarlím
Aðferð:
- Setjið matarlím í kalt vatn.
- Kljúfið vanillustöngina í tvennt og skafið fræin úr.
- Setjið fræin, sykur, kornsíróp og vatn í pott og sjóðið upp í 110 – 120 gráður.
- Takið matarlímið úr vatninu og setjið út í sírópið og þeytið í hrærivél.
- Smyrjið form með olíu og smyrjið sykurpúða í deiginu.
- Kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir og skerið í hentuga bita.
Heitt jólasúkkulaði
- 500 g mjólk
- 100 g suðusúkkulaði
- 2 msk. kakó
- 2 msk. sykur
- 1 tsk. kanill
- 1 msk. vanilludropar
- 100 g rjómi
Aðferð:
- Hitið mjólk upp að suðu og skerið súkkulaðið á meðan.
- Setjið allt nema rjómann út í mjólkina og hrærið þar til þetta er kekkjalaust.
- Setjið rjómann út í og látið sjóða upp.
- Setjið sykurpúða á grillprjón og brennið með litlum gasbrennara eða kerti.
- Hellið heitu súkkulaði í fallegan bolla og leggið grillprjóninn með sykurpúðanum á yfir bollann og berið fram.