Frambjóðendurnir Bjarni, Ragnar Þór, Finnur og Dagbjört fengu gull

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á kostum ásamt Ragnari Þór Ingólfssyni, …
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á kostum ásamt Ragnari Þór Ingólfssyni, Finnur Ricart Andrasyni og Dagbjört Hákonardóttur í matreiðslukeppni flokkanna sem Klúbbur matreiðslumeistara stóð fyrir á dögunum. Ljósmynd/Aðsend

Matreiðslukeppni flokkanna fór fram nú í kosningabaráttunni, þar tóku fulltrúar flestra flokka þátt. Keppnin fór fram í æfingaeldhúsi Kokkalandsliðsins sem staðsett er í húsi fagfélaganna við Stórhöfða í Reykjavík. Kokkalandsliðið hefur á undanförnum árum náð stórkostlegum árangri, nú síðast með því að enda í þriðja sæti á Ólympíuleikunum sem fram fóru í febrúar síðastliðnum. Liðið átti bestu þriggja rétta máltíðina á leikunum.

Niðurstaða keppninnar var þessi:

  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, gull.
  • Ragnar Þór Ingólfsson, Flokki fólksins, gull.
  • Finnur Ricart Andrason, Vinstri grænum, gull.
  • Dagbjört Hákonardóttir, Samfylkingu, gull.
  • Einar Bárðarson, Framsóknarflokki, silfur.
  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Pírötum, silfur.
  • Pawel Bartoszek, Viðreisn, brons.
  • Jakob Frímann Magnússon, Miðflokki, viðurkenning.

Sjáið gullverðlaunahafana leika listir sínar í eldhúsinu!

Dæmd fyrir bragð, útlit, vinnubrögð og hreinlæti

Í keppnum landsliða í matreiðslu geta mörg lið fengið hverja einkunn en gefið er gull, silfur, brons og viðurkenning. Dómnefndin dæmdi bragð, útlit, vinnubrögð og hreinlæti. Keppendur höfðu 70 mínútur til að elda annaðhvort íslenskt lambakjöt eða lúðu sem í báðum tilfellum var borið fram með kartöflum og grænmeti en þeir keppendur sem elduðu lamb urðu að gera béarnaise-sósu og þeir sem elduðu fisk urðu að bera fram með honum hollandaise-sósu.

Snædís, Ísak Aron og Sindri Guðbrandur sáu um dómnefndarstörfin

Þátttakendur í keppni flokkanna komu svo sannarlega á óvart í eldhúsinu en flestir þeirra sýndu frábær tilþrif og afgreiddu mat sinn á tíma. Dómarar keppninnar, þau Snædís Xyza Mae Ocampo þjálfari Kokkalandsliðsins, Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði landsliðsins og Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Bocuse d’Or keppandi Íslands 2025, nutu þess að smakka hvern réttinn á fætur öðrum.

Íslenskir veitingastaðir koma ferðamönnum á óvart

Íslenskir veitingastaðir koma ferðamönnum sífellt á óvart með framsækni og stöðugleika. Kokkalandsliðið hefur allt frá því að það hóf að keppa erlendis 1978 verið stór partur af framþróun íslenskrar veitingaflóru, sem hefur styrkt stöðu íslenskrar ferðaþjónustu með gæðum sínum.

Íslensk lúða borin fram með grænmeti, kartöflum og hollandaise-sósu.
Íslensk lúða borin fram með grænmeti, kartöflum og hollandaise-sósu. Ljósmynd/Aðsend
Íslenskt lambakjöt borið fram með grænmeti, kartöflum og béarnaise-sósu.
Íslenskt lambakjöt borið fram með grænmeti, kartöflum og béarnaise-sósu. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka