Krónan Bíldshöfða opnar í dag

Karl Hafsteinsson, verslunarstjóri Krónunnar á Bíldshöfða og Ólafur Rúnar Þórhallsson …
Karl Hafsteinsson, verslunarstjóri Krónunnar á Bíldshöfða og Ólafur Rúnar Þórhallsson forstöðumaður reksturs og þjónustu. Ljósmynd/Aðsend

Verslun Krónunnar á Bíldshöfða opnar á ný í dag, fimmtudaginn 28. nóvember, eftir allsherjarendurnýjun þar sem markmið breytinganna er að mæta betur fjölbreyttum þörfum viðskiptavina og bæta upplifun til muna að því segir í tilkynningu frá Krónunni

Hönnuð að þörfum nútímans

„Við erum ákaflega ánægð með að bjóða viðskiptavini okkar velkomna á ný í verslun okkar á Bíldshöfða sem nú hefur verið endurhönnuð til að mæta sem best þörfum nútímans. Verslunin var opnuð á Bíldshöfða árið 2003 sem níunda verslunin undir merki Krónunnar og því kominn tími á endurnýjun. Sem ávallt fær ferskleiki og fjölbreytt vöruúrval að njóta sín í endurskipulögðu flæði og við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum á nýjan leik,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar, en Krónan hlaut á dögunum Hönnunarverðlaun Íslands fyrir 

„Bestu fjárfestinguna í hönnun,“ fyrir að hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi í starfsemi sinni til að auka gæði, verðmætasköpun og samkeppnishæfni.

Glæsileg og mun stærri ávaxta- og grænmetisdeild

Sem dæmi um breytingar má nefna að ávaxta- og grænmetisdeildin hefur verið tvöfölduð að stærð frá því sem var, brauðdeildin hefur verið stækkuð og fjölbreytt vöruúrval fær að njóta sín betur. Grænar innkaupakerrur úr endurunnu plasti úr sjónum prýða verslunina, orkusparandi LED lýsing er í allri versluninni og kælar og frystar eru keyrðir með umhverfisvænu kerfi sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda. Jafnframt er áhersla lögð á lokaða, kæla og frysta til að spara orku enn frekar og verslunin er Svansvottuð líkt og aðrar Krónuverslanir. Í tilefni breytinganna verður lífrænum vörum lyft á stall með sérstöku afsláttarverði á öllum vörum Grøn Balance yfir helgina, en þær eru í senn lífrænt vottaðar og ofnæmisprófaðar. Auk þess verða ýmis önnur tilboð í boði þessa opnunarhelgi.

Nýjung í Skannað og Skundað

Til að auðvelda innkaupin enn frekar hefur Krónan þróað nýjung í snjalllausninni Skannað og Skundað en hún sýnir viðskiptavinum á yfirlitskorti hvar vörur eru staðsettar í búðinni á Bíldshöfða. “Þetta er mjög gagnlegt fyrir þau okkar sem lenda stundum í því að finna ekki vörur í búðinni en það getur verið tímafrekt að leita og jafnvel ergelsi sem fylgir. Með þessari lausn er nóg að stimpla inn í appið hvað þú ert að leita að og þú færð nákvæma staðsetningu ásamt því að verðmerking á hillunni byrjar að blikka,” segir Guðrún. Fyrir hefur þessi lausn verið virkjuð í Krónunni á Granda við jákvæðar undirtektir.

Tímasparnaður á Bíldshöfðanum

Verslun Krónunnar við Bíldshöfða 20 er staðsett í rúmgóðu verslunarhúsnæði, þar sem er að finna fjölbreytta atvinnustarfsemi á borð við apótek, banka, bakarí, tvær húsgagnaverslanir og póstbox til að sækja eða senda pakka. Með nægum bílastæðum og góðu aðgengi geta viðskiptavinir sparað tíma og fyrirhöfn með því að sinna mörgum erindum á einum stað. Þetta gerir Bíldshöfða að hentugum og þægilegum viðkomustað fyrir bæði íbúa og þá sem vinna í þessum hluta borgarinnar.

Starfsfólk Krónurnar var að leggja lokahönd á uppsetningu á vörum í versluninni í gær þar sem gleðin var við völd.

 

Jón Helgi Jónsson og Ólafur Ragnarsson ánægðir með endurnýjunina.
Jón Helgi Jónsson og Ólafur Ragnarsson ánægðir með endurnýjunina. Ljósmynd/Aðsend
Freyja Óskarsdóttir leggur lokahönd á röðun í hillurnar.
Freyja Óskarsdóttir leggur lokahönd á röðun í hillurnar. Ljósmynd/Aðsend
Alanas Noreika í mjólkurkælinum.
Alanas Noreika í mjólkurkælinum. Ljósmynd/Aðsend
Natalia Szczepanska að störfum.
Natalia Szczepanska að störfum. Ljósmynd/Aðsend
Eyrún Jónsdóttir að klára uppfyllingar í hillurnar sín megin.
Eyrún Jónsdóttir að klára uppfyllingar í hillurnar sín megin. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka