Nýr sælkeri mættur í Epal

Umbúðirnar á vörunum frá Parlans Konfektyr eru smart með klassísku …
Umbúðirnar á vörunum frá Parlans Konfektyr eru smart með klassísku yfirbragði sem vekur um leið upp nostalgíu. Ljósmynd/Aðsend

Nýjar sælkerakræsingar eru mættar til landsins sem koma úr smiðju Parlans Konfektyr. Hann er þekktur sænskur sælgætisframleiðandi sem kemur beint frá hjarta Stokkhólms með handgerðar klassískar karamellur, sælkerasósur og gæðasúkkulaði gert úr náttúrulegum hráefnum og alvöru ástríðu. Sjálfur er hann mikill sælkeri og sækir innblástur sinn í það sem heillar hann.

Girnilegar makkarónur með karamellu og salti.
Girnilegar makkarónur með karamellu og salti. Ljósmynd/Aðsend

Sælkerasósurnar frá Parlans Konfektyr njóta ótrúlegra vinsælda og eru þær góð viðbót við eftirréttinn og baksturinn, og fæstir standast freistinguna að smakka karamelluna beint úr krukkunni með skeið að sögn þeirra sem þekkja til.

Jólafílingur að sjá þessar karamellur.
Jólafílingur að sjá þessar karamellur. Ljósmynd/Aðsend

„Umbúðirnar eru smart með klassísku yfirbragði sem vekur um leið upp nostalgíu og eru vörurnar frá Parlans Konfektyr tilvalin gjafahugmynd fyrir sælkerana í þínu lífi. Sælkerakaramellusósurnar eru bragðbættar með eplum og kanil, vanillu, lakkrís, saltkaramellu og súkkulaðibragði og eru hver annarri betri,“ segir Kjartan Páll Eyjólfsson hjá Epal.

Freistandi að sjá þessa karamellusósu.
Freistandi að sjá þessa karamellusósu. Ljósmynd/Aðsend
Hugglegheit með kaffibolla og súkkulaði.
Hugglegheit með kaffibolla og súkkulaði. Ljósmynd/Aðsend
Jólalega sælkerakræsingar.
Jólalega sælkerakræsingar. Ljósmynd/Aðsend
Fallegar umbúðir.
Fallegar umbúðir. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert