Fallegur og girnilegur jólakrans bar sigur úr býtum

Þessi fallegi og girnilegi jólakrans gerður úr ávöxtum bar sigur …
Þessi fallegi og girnilegi jólakrans gerður úr ávöxtum bar sigur úr býtum í Jólaleik Krabbameinsfélagsins í samstarfi við Banana ehf. og Hagkaups. mbl.is/Hákon

Falleg sjón blasti við þegar ávaxta- og grænmetisbakkarnir voru frumsýndir sem tóku þátt í Jólaleik Krabbameinsfélagsins í samstarfi við Banana og Hagkaup sem fram fór síðastliðna helgi.

Fallegur og girnilegur jólakrans bar sigur úr býtum en keppnin var hníffjöfn að þessu sinni. Það var Aleksandra Jakubiuk sem útbjó sigurkransinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.

Aleksandra Jakubiuk bar sigur úr býtum með fallegan og girnilegan …
Aleksandra Jakubiuk bar sigur úr býtum með fallegan og girnilegan jólakrans. Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri hjá Bönununm afhenti verðlaunin. mbl.is/Hákon

Þetta var í þriðja sinn sem þessi jólaleikur er haldinn á aðventunni. Framlögin voru afar fjölbreytt og skemmtileg - sjón er sögu ríkari eins og sjá má á myndunum.

Passa upp á að hollustan gleymist ekki í jólaamstrinu

„Óskað var eftir skapandi og jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, kryddjurtum, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Tilgangurinn og markmiðið með leiknum er að hvetja fólk til að passa upp á að hollustan gleymist ekki í jólaamstrinu innan um allar freistingarnar,“ segir Ása Sigríður Þórisdóttir kynningastjóri hjá Krabbameinsfélaginu.

Úrslitin voru kunngerð í Smáralind um helgina og voru vinningstillögurnar til sýnis á göngugötunni. Óhætt er að segja að þær hafi vakið verskuldaða athygli. „Fólk var duglegt að taka myndir af tillögunum og var spennt að nýta á borðið sitt. Eins og myndirnar sýna, þá er hægt að gera ótrúlega skemmtilegar útfærslur án þess að það sé of tímafrekt eða flókið þó að vissulega taki sumar hugmyndirnar ögn lengri tíma en aðrar,“ segir Ása Sigríður enn fremur.

Yngri kynslóðin var sérstaklega hrifin af jólakræsingunum sem gerðar voru …
Yngri kynslóðin var sérstaklega hrifin af jólakræsingunum sem gerðar voru úr ávöxtum og grænmeti. Ljósmynd/Krabbameinsfélagið

Úrslitin voru eftirfarandi og fengu sigurvegararnir vegleg verðlaun:

1. sæti: Fallegur og girnilegur jólakrans, Aleksandra Jakubiuk. Aleksandra fékk að launum 60.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 40.000 kr. gjafabréf frá Hagkaup.

Innihaldslýsing: Kaki, fíkjur, rósmarín, salvía, rauð vínber, granatepli, brómber, nektarínur, græn epli, kiwi, sítróna og gullappelsína (kumquat).


2. sæti: Ævintýraleg Jólaugla, Migle Milinauskaite. Miglė fékk 25.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 25.000 gjafabréf frá Hagkaup.

Innihaldslýsing: Ananas, ramiro paprika, gulrætur, bláber, radísur, kókosflögur, hunang og kantilópa.


3. sæti: Jólaboð Snæfinns, Birna Varðardóttir. Birna fékk 15.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 15.000 gjafabréf frá Hagkaup. Snæfinnur og frú eiga von á góðum vinum í jólaboð. Húsið er ríkulega skreytt og öll borð að svigna undan kræsingum.

Innihaldslýsing: Vatnsmelóna, kantilópa, rifsber, jarðarber, brómber, radísur, gulrætur, negulnaglar, appelsínur, ástríðuávöxtur, ananas, þurrkaður ananas, agúrka, drekaávöxtur og kiwi.

Aukaverðlaun

Einnig fengu Jólakrans, Mantas Zabulis og Jólakúla, Eliza Angelika Grygo aukaverðlaun frá Lemon og vefverslun Krabbameinsfélagsins fyrir skemmtilegar útfærslur.

Dómnefnd skipuðu:

  • Jóhanna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Banana.
  • Sjöfn Þórðardóttir, umsjónarmaður matarvefs Mbl.is.
  • Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur í fræðsludeild Krabbameinsfélagsins.
  • Rakel María Hjaltadóttir.

 

Migle Milinauskaite hlaut annað sætið fyrir verkið Ævintýraleg Jólaugla.
Migle Milinauskaite hlaut annað sætið fyrir verkið Ævintýraleg Jólaugla. mbl.is/Hákon
Jólauglan lenti í öðru sæti. Mjög frumleg og skemmtileg úrfærsla …
Jólauglan lenti í öðru sæti. Mjög frumleg og skemmtileg úrfærsla á uglunni og einstaklega flott jólaskreyting á hátíðarborðið. mbl.is/Hákon
Birna Varðardóttir hlaut þriðja sæti fyrir Jólaboð Snæfinns snjókarls.
Birna Varðardóttir hlaut þriðja sæti fyrir Jólaboð Snæfinns snjókarls. Ljósmynd/Krabbameinsfélagið
Jólaboð Snæfinns snjókarls hlaut þriðja sætið.
Jólaboð Snæfinns snjókarls hlaut þriðja sætið. mbl.is/Hákon
Jólakúlan eftr Eliza Angelika Grygo hlaut aukaverðlaun.
Jólakúlan eftr Eliza Angelika Grygo hlaut aukaverðlaun. mbl.is/Hákon
Eliza Angelika Grygo fékk aukaverðlaun fyrir Jólakúluna.
Eliza Angelika Grygo fékk aukaverðlaun fyrir Jólakúluna. mbl.is/Hákon
Jólakrans Mantas Zabulis sem einnig hlaut aukaverðlaun.
Jólakrans Mantas Zabulis sem einnig hlaut aukaverðlaun. mbl.is/Hákon
Dómnefndina skipuðu Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri Banana, Sjöfn Þórðardóttir umsjónarmaður matarvefs …
Dómnefndina skipuðu Jóhanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri Banana, Sjöfn Þórðardóttir umsjónarmaður matarvefs mbl.is, Sigrún Elva Einarsdóttir sérfræðingur í fræðsludeild Krabbameinsfélagsins og Rakel María Hjaltadóttir. mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert