Eftir 13 ára rekstur mun veitingastaðurinn Slippurinn heyra sögunni til eftir næsta sumar. Frá þessu greinir Gísli Matthías Auðunsson, eða Gísli Matt, yfirkokkur og eigandi staðarins, í tilkynningu til fjölmiðla og á Instagram-reikningi sínum.
„Þegar við stofnuðum Slippinn árið 2012 höfðum við ekki hugmynd um hversu mikil áhrif hann myndi hafa á líf okkar og feril. Það hefur verið ótrúlegt að vinna með fjölskyldunni minni, dásamlegum samstarfsmönnum og heimafólki í Vestmannaeyjum. Við erum óendanlega þakklát og horfum bjartsýn til okkar síðasta tímabils sem við stefnum að því að gera það besta til þessa,“ er haft eftir Gísla.
Gísli var aðeins 23 ára þegar hann opnaði veitingastaðinn og hefur fjölskylda hans komið að rekstrinum, meðal annars foreldrar hans og systir.
„Ástæða lokunarinnar er sú að við trúum því að allt gott taki enda. Foreldrar mínir eru ekki að verða yngri, og ég finn að við höfum náð ákveðnum áfangapunkti með Slippinn – stað þar sem við höfum gert allt sem við getum gert. Nú er rétti tíminn til að staldra við, líta yfir farinn veg og horfa fram á við.“
Hægt verður að fara á Slippinn í sumar og hefur þegar verið opnað fyrir bókanir.