Þessi kjúklingaréttur er bæði einfaldur og ljúffengur og á vel við í miðri viku. Hann er með ferskum mozzarellakúlum með basilíku sem gefa einstaklega gott bragð. Heiðurinn af uppskriftinni á Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar en hún hefur mikið dálæti af réttum sem einfalt er að matreiða og passa vel fyrir alla fjölskylduna.
Fylltar kjúklingabringur með mozzarella og basilíku
Fyrir 4
- 4 stk. kjúklingabringur
- 200 g spínat
- 2 hvítlauksrif
- 150 g hreinn rjómaostur
- 50 g Goðdala Reykir, rifinn
- 2 pískuð egg
- ljós brauðraspur eftir smekk
- 8 tsk. rautt pestó
- 12 stk. mozzellakúlur með basilíku
- fersk basilíka eftir smekk
- salt og pipar eftir smekk
- matarolíusprey
- ólífuolía eftir smekk
Aðferð:
- Setjið hverja kjúklingabringu í sterkan poka og fletjið út með buffhamri.
- Steikið hvítlauk og spínat upp úr ólífuolíu þar til það mýkist.
- Saltið og piprið eftir smekk.
- Stappið saman spínati, rjómaosti og rifnum Goðdala Reyki.
- Leggið til hliðar.
- Setjið vel af spínatblöndunni við endann á hverri kjúklingabringu, rúllið upp og reynið að vefja endana inn undir.
- Veltið upp úr eggi og því næst brauðraspi.
- Leggið á ofnskúffu og reynið að þjappa endunum aðeins undir, samt líka allt í lagi þó að það leki smá spínatblanda út.
- Spreyið vel með matarolíuspreyi og bakið í 220°C heitum ofni í 25 mínútur.
- Takið kjúklingaréttinn úr ofninum.
- Setjið 2 tsk. af rauðu pestói yfir hverja bringu og raðið 3 mozzarella-kúlum með basilíku þar ofan á.
- Setjið í ofninn aftur í um 5 mínútur.
- Að lokum má strá smá af ferskri basilíku yfir bringurnar.
- Berið fram með því sem hugurinn girnist og njótið.