Arna Engilbertsdóttir á heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni sem er alveg í hennar anda.
Arna gaf nýverið út matreiðslubókina Fræ sem hefur að geyma fjöldann allan af uppskriftum að réttum sem hún hefur þróað og hefur dálæti af. Hún hefur mikinn áhuga á matargerð og hvernig við getum sjálf haft áhrif á okkar eigin líkamlegu og andlegu heilsu með réttu mataræði.
Arna er ávallt með marga bolta á lofti og er hæfileikarík á mörgum sviðum. Hún er stílisti, tísku- og matarunnandi og heldur úti matarvefnum Fræ.com. Einnig er hún eigandi netverslunarinnar Rokyo.is.
„Ég er ein af þeim sem eru alltaf spennt að byrja að borða venjulegan mat aftur eftir hátíðarnar þrátt fyrir að hefðirnar séu notalegar og fullar nostalgíu. Yfir háveturinn finnst mér best að borða mikið af djúsí pottréttum og heitum mat í bland við stór matarmikil salöt með fjölbreyttum kryddum,“ segir Arna.
„Það er ótrúlega gaman að borða eftir árstíðum og kynna sér hvaða hráefni eru best hverju sinni og það gefur hverri árstíð örlítið þema. Ég hvet líka allar konur til að kynna sér hvernig hægt er að borða eftir tíðahringnum, það hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á mig,“ bætir Arna við.
Sterkt krydd heillar Örnu og hún notar þau óspart. „Ég set hinar ýmsu tegundir af chili eða sterkum sósum á allt og það er ekkert sem mér finnst það ekki passa við. Ég á það til að gleyma að það hafi ekki allir smekk fyrir því sama og ég en eiginmaðurinn situr oftar en ekki sveittur við matarborðið,“ segir Arna og hlær.
Hér kemur draumavikumatseðillinn hennar Örnu sem á vel við þessa árstíð og gefur lífinu lit.
Mánudagur – Spaghetti grasker með ostasósu
„Grasker er fullkomið hráefni yfir vetrartímann og ég elska að gera alls konar ólíkar fyllingar.
Þriðjudagur – Indversk vetrarsúpa
„Indversk vetrarsúpa með fjölda yljandi krydda hljómar svo vel.“
Miðvikudagur – Grænt salat með ristuðum hnetum
„Stórt ferskt salat með hnetum, avókadó, góðri sósu og súrkáli er mjög vinsælt á mínu heimili.“
Fimmtudagur – Karríkókos-pottréttur
„Girnilegur karrí-kókospottréttur með öllu því góða.“
Föstudagur - Fylltar paprikur
„Fylltar paprikur með kínóa og baunum, frábær leið til að setja grænmetið í nýjan búning.“
Laugardagur Kúrbíts- og heslihnetusteik
„Kúrbíts- og heslihnetusteik á laugardagskvöldi frá Guðnýju í Garðinum myndi vekja mikla lukku.“
Sunnudagur – Salata með ristuðu blómkáli
„Blómkál, linsubaunir, fullt af döðlum og möndlum, fullkomið til að byrja nýja viku.