Á þessum árstíma er upplagt að fá sér góða súpu sem rífur aðeins í og gleður bragðlaukana. Hér erum við með uppskrift að sjávarréttasúpu sem borin er fram með hvítlauksbrauði og kemur úr smiðju Berglindar Hreiðars hjá Gotterí og gersemar. Uppskriftina gerði hún fyrir matarvefinn Gott í matinn.
Þessi súpa er afar góð og rífur aðeins í, það er hægt að bæta chili í súpuna ef vill og gera hana aðeins sterkari. Svo er alltaf gott að bera fram brauð með súpum, það má líka baka brauðbollur ef tími gefst og leggja enn meiri metnað í máltíðina.
Sjávarréttasúpa og hvítlauksbrauð
Sjávarréttasúpa
- 700 g þorskur, skorinn í bita (munnbitastærð)
- 200 g lax, skorinn í bita (munnbitastærð)
- 300 g risarækjur/humar/hörpuskel
- 500 g minni rækjur (soðnar)
- 1 stk. laukur, saxaður smátt
- 3 stk. hvítlauksrif (pressuð)
- 1 stk. rauð paprika, skorin í strimla
- 1 stk. gul paprika, skorin í strimla
- 4 stk. gulrætur skornar í strimla
- 1 stk. blaðlaukur, skorinn smátt
- 1 dós tómatpúrra
- ½ l vatn
- 1 dós kókosmjólk
- 1 dós niðursoðnir tómatar í bitum
- ½ l rjómi
- 1 msk.fiskikraftur
- 1 msk.ferskt rósmarín (saxað smátt)
- Karrí eftir smekk
- Salt og pipar eftir smekk
- Hvítlauksduft eftir smekk
- Cayenne pipar eftir smekk
- Ólífuolía eftir smekk
Aðferð:
- Steikið lauk, hvítlauk og vel af karrý upp úr ólífuolíu stutta stund.
- Bætið þá paprikum og gulrótum saman við og kryddið með salti, pipar, hvítlauksdufti og smá Cheyenne pipar.
- Því næst fer blaðlaukurinn saman við og hrært stutta stund.
- Tómatpúrrunni er þá blandað saman við grænmetið ásamt vatninu og leyft að blandast.
- Þá má bæta kókosmjólkinni, rjómanum og niðursoðnu tómötunum í pottinn.
- Þessu er leyft að malla, fiskikrafti bætt saman við ásamt rósmaríni og svo kryddað til eftir smekk með salti, pipar, Cheyenne pipar og hvítlauksdufti.
- Náið því næst upp suðunni og bætið fisknum og risarækjunum saman við.
- Því næst færi humar/hörpuskel séuð þið með slíkt og að lokum minni rækjurnar þar sem þær þurfa örstuttan tíma, bara rétt að hitna.
- Berið síðan fram með heitu hvítlauksbrauðið, sjá uppskrift fyrir neðan, og njótið.
Hvítlauksbrauð
- 1 baguette brauð, skorið skáhallt í sneiðar
- Smjör eftir smekk
- ½ pk. rifinn Mozzarella
- Hvítlauksduft eftir smekk
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Smyrjið vel af smjöri á hverja brauðsneið og raðið á bökunarplötu/bökunarpappír, skerið með ostaskera ef smjörið kalt.
- Kryddið með hvítlauksdufti og smá salti.
- Stráið mozzarella-osti yfir hverja sneið og kryddið yfir allt með pipar.
- Bakið í ofni við 200°C þar til hæfilega stökkt í nokkrar mínútur.