Súfistinn lokar dyrum sínum fyrir viðskipti fyrir fullt og allt í lok dags, föstudaginn 17. janúar næstkomandi eftir 30 ára ævintýri. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Súfistans.
Kaffihúsið Súfistinn var stofnað árið 1994 af hjónunum Birgi Finnbogasyni og Hrafnhildi Blomsterberg og hefur verið rekið af þeim og fjölskyldu þeirra frá upphafi. Súfistinn fagnaði 30 ára afmæli sínu í sumar en hann hefur alla tíð verið staðsettur í einu elsta steinhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 9 og hefur notið mikilla vinsælda hjá gestum og gangandi.
Færsluna í heild sinni má lesa hér fyrir neðan:
„Nú er komið að leiðarlokum í rekstri Súfistans. Birgir og Hrafnhildur stofnuðu staðinn með tvær ungar dætur sem báðar hafa tekið virkan þátt í rekstrinum í gegnum tíðina. Valgerður, eldri dóttirin, kom mikið að rekstrinum fyrr á árum en síðastliðin ár hefur yngri dóttirin, Hjördís, séð um allan almennan rekstur Súfistans. Barnabörnin hafa alist upp og unnið á Súfistanum og eiga margar góðar minningar frá staðnum og dyggum viðskiptavinum hans. Nú ætlar fjölskyldan að snúa sér að öðrum verkefnum.
Súfistinn lokar því dyrum sínum fyrir viðskipti fyrir fullt og allt í lok dags, föstudaginn 17. janúar, eftir 30 ára ævintýri
Laugardaginn 18. janúar næstkomandi verður opið hús fyrir alla viðskiptavini Súfistans milli klukkan 13:00 og 18:00 þar sem heitt verður á könnunni og viðskiptavinir geta hist, kvatt staðinn, eigendur og starfsfólk.
Þann dag mun Halldór Árni Sveinsson opna málverkasýningu með nýjum verkum frá Hellisgerði sem hann málaði sérstaklega fyrir veggi Súfistans. Sýningin verður aðgengileg út janúar. Tímasetningar koma síðar.
Við fjölskyldan göngum stolt frá þessu 30 ára starfi okkar og þökkum fyrir allar góðar samverustundir.“