Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Chili-jarðhnetur frá Til hamingju.
Ástæða innköllunar er að varan inniheldur ofnæmis- eða óþolsvald, soja, sem ekki er tilgreindur á umbúðum.
Neysla vörunnar getur verið varasöm fyrir einstaklinga sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og afurðum úr því.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við eru eftirfarandi:
Vörumerki: Til hamingju
Vöruheiti: Chili jarðhnetur
Geymsluþol: Best fyrir: 28.02.25, 22.07.25 og 25.09.25
Strikamerki: 569059092495
Nettómagn: 150 g
Framleiðandi: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
Framleiðsluland: Ísland
Vörunni hefur verið dreift í eftirfarandi verslanir um land allt, Hagkaup, Verslunin Blómsturvellir, Verslunin Einar Ólafsson, Pétursbúð, Fjarðarbúðin, Fjarðarkaup, Fríhöfnina, Heimkaup, Hjá Jóhönnu, Hlíðarkaup, Jónsabúð, K.f. V-Húnvetninga, Lyfjabúrið, Melabúðin, Skerjakolla, Skálinn Þorlákshöfn, Smáalind, Verslunin Álfheimar, Verslunin Árborg, Verslunin Ásbyrgi og Verslunin Kassinn.
Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og afurðum úr því eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni til Nathan & Olsen.
Nánari upplýsingar um innköllun eru gefnar upp hjá þjónustuveri Nathan & Olsen í síma 530 8400 eða hjá Sigríði Erlu Markúsdóttur, gæðastjóra, í gegnum netfangið sigridur.markusdottir@1912.is.