„Íslendingar eru heimsmeistarar að borða á methraða“

Nína Björk Gunnarsdóttir og Askur hundurinn hennar njóta sín heima …
Nína Björk Gunnarsdóttir og Askur hundurinn hennar njóta sín heima í stofu. Nína ljóstrar upp nokkrum staðreyndum um matarvenjur sínar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nína Björk Gunnarsdóttir, athafnakona og fagurkeri með meiru, ljóstrar upp áhugaverðum staðreyndum um matarvenjur sínar að þessu sinni. Hún elskar fallegan og góðan mat, til að mynda indverskan, ítalskan, mexíkóskan, tælenskan og íslenskt sjávarfang. Hún er líka meðvituð um að mataræði hefur mikið að segja fyrir andlega og líkamlega líðan og heilbrigði.

Nína starfar hjá Lyfju sem flakkari við að þjónusta fólk um land allt með lyf, vítamín, fæðibótarefni, húðvörur, snyrtivörur og allt það sem Lyfja hefur upp á að bjóða.

„Ég er lærður ljósmyndari og jógakennari og stefni á að hefja kennslu í jóga með jógafræði, sem eru bestu verkfærin til að koma sér í gott andlegt og líkamlegt form,“ segir Nína og er á því að við getum mörg okkar hugsað betur um okkur.

Nína er fagurkeri fram í fingurgóma og er oftar en …
Nína er fagurkeri fram í fingurgóma og er oftar en ekki með marga bolta á lofti í einu. Ljósmynd/Aðsend

Brautirnar okkar eru oft stíflaðar af úrgangi

„Hraðinn á okkur er nefnilega svo galinn að mörg okkar fara langt fram úr okkur. Við gleymum að anda og borða, sem eru lykilatriðin. Öndunin okkar er mikilvæg til að komast áfram á góðan stað í lífinu, hreinsar og brennur upp öllu gömlu sem er óþarfi fyrir okkur. Brautirnar okkar eru oft stíflaðar af úrgangi sem við höfum ekki náð að hreinsa út, þess vegna eru margir sjúkdómar lífstílssjúkdómar,“ segir Nína alvörugefin.

„Mataræðið er stór þáttur í að vera heilbrigð og þess vegna er mikilvægt að borða rétt. Til að komast að því hver er okkar dós þurfum við að skoða okkur og taka próf sem svarar okkar sannleika. Dósirnar í jógafræðinni eru þrjár: Vata, Pitta og Kapha. Þær segja okkur hvað hentar hverjum og einum í mataræði.

Íslendingar eru heimsmeistarar að borða á methraða, við erum alltaf að flýta okkur, sem er vanvirðing fyrir þann sem stóð hellengi að nostra við matinn fyrir okkur. Það allra besta fyrir meltinguna er að tyggja matinn vel og dást að matnum um leið,“ segir Nína með bros á vör.

Losa okkur við það sem þjónar okkur ekki

„Aðalatriðið er að taka okkur ekki of alvarlega í daglegu lífi, finna ástríðu fyrir því sem vekur upp áhuga hjá okkur, sýna þakklæti fyrir það góða í okkar lífi og losa okkur við það sem þjónar okkur ekki lengur í lífi og starfi.

Við eigum að hafa gaman að því að bjóða skemmtilegu fólki í matarboð. Muna eiga tíma fyrir okkur sjálf. Oftast er egóið okkar og hugurinn að stjórna í staðinn fyrir að skoða hvað sé best fyrir sálina. Við þurfum að spyrja okkur um hvað sé best fyrir sálina okkar. Þannig verðum við besta útgáfan af okkur sjálfum,“ segir Nína.

Nína er lærður ljósmyndari og jógakennari.
Nína er lærður ljósmyndari og jógakennari. Ljósmynd/Aðsend

Tilbiður góðan kaffibolla

Nína gaf sér tíma til að svara nokkrum pratískum spurningum um matarvenjur sínar.

Hvað færðu þér í morgunmat?

„Ég verð að viðurkenna að ég borða sjaldan morgunmat, er frekar lystarlaus á morgnana. En volgt vatn, sítróna, engifer og smá hunang er gott fyrir meltinguna. Ég tilbið góðan kaffibolla, þá vakna ég vel og er extra tilbúin í daginn.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Ávextir, til dæmis banani með hnetusmjöri, er mitt uppáhald núna. Það er svo gott saman og mjög orkuríkt. Smoothie er mjög vinsæll á mínu heimili. Svo þykir mér dökkt súkkulaði alltaf gott.“

Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?

„Já, hádegismatur er mjög mikilvægur fyrir mig sem borða lítið sem ekkert á morgnana.“

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?

„Mjólk, ostar, djús, sódavatn, grænmeti, harðfiskur, egg, hummus, gott álegg ofan á brauð. Síðan er líka ávallt til grísk jógúrt og Ab-mjólk.“

Ferðu á Þorrablót?

„Nei, ég hef ekki gert það nýlega, en þá mundi ég velja KR þorrablótið, ekki út af matnum, frekar skemmtilega fólkinu sem mætir oftast þangað.“

„Súrmatur fer ekki upp í minn munn“

Borðar þú þorramat?

„Mamma og afi gáfu mér sviðasultu og hákarl þegar ég var lítil stelpa og sviðakjamma með rófustöppu, það fannst mér gott. Mamma ætlaði að koma upp í mig hrútspungum en ég afþakkaði, líka skrítið heiti á mat. En súrmatur fer ekki upp í minn munn.“

Hvað finnst þér best af þorramatnum?

„Harðfiskur og flatkökur með hangikjöti.“

Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Ég elska Fiskfélagið, Apótekið, Sumak og Sushi train, annars er eldhúsið mitt uppáhaldsstaðurinn.“

Hvað færð þú þér á pylsuna þína?

„Eina með öllu, nauðsynlegt að hafa þá myntu í töskunni sérstaklega ef þú ætlar að knúsa einhvern fljótlega eftir pylsuna.“

Hver er uppáhaldsrétturinn þinn?

„Mjög erfitt val að gera upp á milli rétta, þeir eru margir í uppáhaldi. Til að mynda tælenskur kjúklingur í massamankarry, þorskur og heitreiktur lax með spínatsósu sem Aron eldar, blómkálið á Sumac og soðin ýsa klikkar aldrei.“

Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?

„Það fer eftir hvað ég er að borða. Sætar kartöflur verða oftast fyrir valinu. Salat er alltaf ferskt og gott með góðri dressingu.“

Uppáhaldsdrykkurinn þinn?

„Íslenskt vatn, collab, ískaldur bjór og Aperol spritz á góðum sumardegi.“

 

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert