Ómótstæðilega góður ofnbakaður fiskréttur

Ómótstæðilega góður fiskréttur sem bragð er af.
Ómótstæðilega góður fiskréttur sem bragð er af. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Góðir ofnbakaðir fiskréttir njóta ávallt mikilla vinsælda hjá mörgum fjölskyldum og það er vel hægt að mæla með þessum rétti. Þetta er fiskréttur með eplum, mangó chutney, rjómaosti og fleira góðgæti sem gleður bragðlaukana. Hann er í raun ómótstæðilega góður og kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur hjá Eldhúsperlum. Uppskriftina gerði hún fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Fiskréttur með eplum, mangó chutney og rjómaosti

Fyrir 3-4

  • 600 g ýsa, þorskur eða annar hvítur fiskur skorinn í bita
  • 2 dl rækjur (má sleppa)
  • 2 stk. gulrætur
  • 1 stk. púrrulaukur
  • 1 stk. rauð paprika
  • 1 stk. græn paprika
  • 1 stk. grænt epli
  • 2 msk. smjör
  • 2 tsk. karríduft
  • 200 g Gamli rjómaosturinn
  • 1 dós 18% sýrður rjómi
  • 1 dl mangó chutney
  • Rifinn bragðmikill ostur, t.d. Óðalsostur eftir smekk
  • Paprikuduft, salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið fiskinn í passlega bita og kryddið með salti og pipar, leggið til hliðar.
  2. Saxið grænmetið og eplið í frekar smáa bita.
  3. Hitið pönnu á meðalhita og bræðið smjörið.
  4. Steikið grænmetið í smjörinu þar til það mýkist aðeins (geymið eplabitana).
  5. Bætið karríduftinu saman við og steikið það með í 1-2 mínútur.
  6. Bætið rjómaostinum, sýrða rjómanum og mangó chutney út á pönnuna og bræðið þetta saman. Þynnið með örlitlu vatni ef ykkur finnst þetta of þykkt, en athugið að það kemur líka vökvi úr fiskinum þegar hann eldast.
  7. Dreifið eplunum og rækjunum yfir og hrærið saman.
  8. Smakkið til með salti og pipar.
  9. Leggið svo fiskinn ofan á sósuna og grænmetið og leyfið þessu að malla þar til fiskurinn er nánast eldaður í gegn.
  10. Stráið osti yfir ásamt smá paprikudufti og stingið inn í ofn undir grill í 5 mínútur eða þar til osturinn er gullinnbrúnn.
  11. Stráið yfir saxaðri steinselju og berið fram með góðu salati og brauði eða hrísgrjónum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert