„Ekkert jafnast á við ömmumat“

Sigrún Ásta Jörgensen flettir ofan af sínum helstu matarvenjum og …
Sigrún Ásta Jörgensen flettir ofan af sínum helstu matarvenjum og fleiru fyrir lesendum að þessu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Sigrún Ásta Jörgensen, stílisti og sminka, flettir ofan af matarvenjum sínum að þessu sinni. Hún er haldin mikilli matarásten það speglast helst í ást hennar á lífrænum mat. Svo veit hún ekkert betra en að fá ömmu mat, það er besti maturinn sem hún fær.

Sigrún er vön að hafa marga bolta á lofti og starf hennar felst gjarnan í því að gera marga hluti í einu. Hún byrjaði nýverið með litgreinaþjónustu og nýtur sín í því hlutverki að litgreina fólk.

Sigrún Ásta starfar sem stílisti og sminka og hefur unnið …
Sigrún Ásta starfar sem stílisti og sminka og hefur unnið ófá verkefni í tengslum við það. Ljósmynd/Aðsend

„Mér finnst einstaklega gaman að fá að litgreina fólk og hjálpa því að finna sína pallettu. Það er ótrúlega gefandi líka og fer vel með öðrum verkefnum sem ég vinn að sem stílisti og sminka,“ segir Sigrún.

Sigrún undirbýr módelið fyrir myndatöku.
Sigrún undirbýr módelið fyrir myndatöku. Ljósmynd/Aðsend

Reyni að vera með lífrænan mat

Sigrún segir að það sé oft nóg að gera á heimilinu hjá henni og eiginmanni hennar, David Young, en þau eiga eina dóttur, Líf, og tvíburadrengina Bent og George. Matartímarnir eru gæðastundir fjölskyldunnar og Sigrún reynir að velja vandað og gott hráefni fyrir sig og sína.

„Ég reyni eftir bestu getu að vera með lífrænan mat og hugsa mikið út í það sem ég set ofan í mig og fjölskylduna mína. Ég er ekki að kaupa mat með mikið af aukaefnum og það er nánast allt lífrænt sem kemur inn á heimilið. Það skiptir mig mjög miklu máli að hafa matinn eins hreinan og hægt er. Einnig reyni ég að kaupa íslenskt og velja hágæða vörur,“ segir Sigrún.

Aðspurð segist Sigrún elska að prufa sig áfram í matargerð heima í eldhúsinu. „Hjónin höfum líka gaman að því að fara út að borða og prófa nýja spennandi rétti. Varðandi mat þá verð ég samt að segja að það jafnast ekkert á ömmumat, það er besti matur sem ég get fengið,“ segir Sigrún dreymin á svip.

Sigrún Ásta leggur áherslu á að vera með lífrænan mat …
Sigrún Ásta leggur áherslu á að vera með lífrænan mat fyrir sig og fjölskylduna. Ljósmynd/Aðsend

Fasta stundum til hádegis

Sigrún tók sér smá tíma aflögu til að svara nokkrum praktískum spurningum um matarvenjur síðan á milli verkefna.

Hvað færðu þér í morgunmat?

„Oftast er það hafragrautur úr tröllahöfrum með chiafræjum, hörfræjum, kasjúhnetum, möndlum, trönuberjum og svo möndlusmjöri ofan á ásamt grískri jógúrt hliðina eða grænsafa. Einnig er ég byrjuð að fasta stundum til hádegis þegar ég er ekki í vinnutörn.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Já, heldur betur, ég er algjör snarlari og það er mjög erfitt fyrir mig að hætta að narta svona á milli mála. Ég fæ mér oftast lífrænt hrískex með dökku súkkulaði, toppað með möndlusmjöri og banana. Síðan eru það stundum hnetur sem verða fyrir valinu.“

Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?

„Já, mjög oft en ef ég er að borða matarmikinn morgunmat fæ ég mér léttan hádegismat. Ég er með tvær reglur fyrir mig þegar það kemur að mat, ég borða ekki fyrir en ég orðin svöng og stoppa þegar ég orðin södd. Ég borða aldrei meira en ég þarf, svo finnst mér þetta oft fara eftir því hvort ég sé búin að borða vel um morguninn eða ekki. Til að mynda ef ég myndi borða matarmikla máltíð í hádeginu þá er ég að fá mér léttan kvöldverð. Mjög líklega væri ég enn frekar vel södd eftir hádegismatinn um kvöldmatarleytið.“

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?

„Egg, ost, fjörmjólk og möndlumjólk.“

Ekki hrifin af hrútspungum

Ferðu á Þorrablót?

„Ég er nýbyrjuð að fara og var mjög spennt fyrir að fara á Kópavogsþorrablótið sem var um helgina. Ég fór með yndislegum vinkonum og það var tryllt stuð.“

Borðar þú þorramat?

„Já, en ég er ekki hrifin af hrútspungunum eða sviðakjömunum.“

Hvað finnst best af þorramatnum?

„Hangikjötið, lifrarpylsan og rúgbrauðið.“

Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að

fara: á hvert ferðu?

„Veitingastaðurinn OTO er í algjöru uppáhaldi hjá mér, Siggi Laufdal yfirkokkur veit nákvæmlega hvað hann er að gera. Uppáhaldsmatarupplifanirnar mínar gerast þar.“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Það er að sjálfsögðu pepperóni, döðlur, rjómaostur og pipar. Síðan toppa ég pítsuna með hvítlauksolíu.“

Hvað færð þú þér á pylsuna þína?

„Steiktan lauk, chili tómasósu og sinnep upp og niðri, algjörlega ómissandi.“

Nætursöltuð ýsa með soðnum kartöflum og smjör

Hver er uppáhaldsrétturinn þinn?

„Það er erfitt að velja úr en verð að segja að klassíkin vinni, nætursöltuð ýsa með soðnumkartöflum og smjöri mun alltaf verða fyrir valinu hjá mér.“

Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?

„Alltaf salat, elska ferskt og gott salat.“

Uppáhaldsdrykkurinn þinn?

„Eins og er það tvöfaldur latte með möndlumjólk.“

Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með verkefnum Sigrúnar á Instagram reikningum hennar hér og á heimasíðu hennar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert