Drykkurinn sem gefur orku út daginn

Kristín Amy Dyer heldur mest upp á drykkinn Matcha Piña …
Kristín Amy Dyer heldur mest upp á drykkinn Matcha Piña Colada og segir hann gefa sér orku út daginn. Samsett mynd/Arnór Trausti Kristínarson

Kristín Amy Dyer er dolfallin áhugamanneskja um mat og hollustu og eitt af því sem hún heldur mest upp á þessa dagana er drykkurinn Matcha Piña Colada.

„Þessi ljúffengi drykkur er fullkominn til að byrja daginn eða sem orkuaukandi millimál. Matcha þykir mér hjálpa við að halda góðum fókus yfir daginn á meðan spínat fyllir á vítamínbirgðirnar og eykur trefjainnihald. Saman gefa þessar ofurhetjur manni ljúffengan og hollan drykk sem bæði kætir líkama og sál,“ segir Kristín.

Hún er stofnandi heildsölunnar Tropic sem sérhæfir sig í innflutningi og framleiðslu og eitt af því sem hún flytur inn er Matcha.

Matcha er mikið í umræðunni um þessar mundir. „Það er úrvalstegund af grænu tei sem hefur margvíslegan heilsuávinning. Við ræktunina eru teblöðin varin frá beinu sólarljósi síðustu vikurnar fyrir uppskeru, sem eykur myndun ákveðinna efna, meðal annars amínósýra og klórófylls (e. chlorophyll),“ segir Kristín Amy sem hefur lesið sér mikið til um þessa áhugaverðu plöntu.

Kristín Amy er dolfallin aðdáandi hollra drykkja.
Kristín Amy er dolfallin aðdáandi hollra drykkja. Ljósmynd/Arnór Trausti Kristínarson

Af hverju er matcha svona hollt?

Matcha er ríkt af andoxunarefnum, sem eru talin geta styrkt ónæmiskerfið og verndað frumur líkamans gegn skaðlegum sindurefnum.

„Matcha inniheldur einnig koffín ásamt amínósýrunni L-theanine, og samspil þessara efna getur skapað „vakandi ró“. Á þann hátt veitir matcha aukna orku án þess að valda of miklu álagi á taugakerfið

Mörgum finnst bragðið af matcha ekkert sérstakt, en ávinningurinn er svo mikill að ég hef markvisst leitað leiða til að innbyrða þessi mögnuðu lauf. Ég ákvað að blanda matcha við holla og bragðgóða sætugjafa á borð við ananas, banana og kókosmjólk. Þá tókst mér jafnframt að bæta góðu magni af spínati í drykkinn til að auka næringarefnin, án þess að draga úr bragðgæðunum,“ segir Kristín Amy með bros á vör og deilir hér með lesendum uppskriftinni að sínum uppáhaldsdrykk.

Matcha Piña Colada.
Matcha Piña Colada. Ljósmynd/Arnór Trausti Kristínarson

Matcha Piña Colada

Fyrir 1-2

  • 1 banani
  • 1 bolli af frosnum ananasbitum
  • 1 dl. kókosmjólk í dós (þykki hlutinn)
  • 25 ml. af vanillupróteini (valkvæmt)
  • 1 tsk. lífrænt matcha
  • Ríkuleg lúka af spínati
  • Dass af köldu vatni

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í blandara og hrærið vel saman.
  2. Hellið í hátt glas og njótið.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert