Elín Bjarnadóttir segir frá skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar en hún er ein af þeim sem þora að prófa skrýtna rétti eins og pöddur. Hún hefur ávallt haft brennandi áhuga á matreiðslu og unnið í ýmsum eldhúsum frá því hún var 16 ára gömul.
Í dag er hún eigandi á Eldabuskunni og Matarkompaní ásamt bróður sínum Guðmundi. „Ég á einn lítinn gutta sem er fjögurra ára og þar sem flestir í bransanum þekkja, þá eru vinnudagirnir oft langir og margir, þar kom hugmyndin hjá okkur systkinunum að byrja með Eldabuskuna.
Við vorum búin að vera að búa til rétti í vinnunni sem við þyrftum bara að klára eldunina í ofni og þar kom hugmyndin að Eldabuskunni upp. Eldabuskan er fyrst og fremst tímasparnaður fyrir fjölskyldur,“ segir Elín og bætir við að þetta fyrirkomulag henti miklu betur barni á heimilinu.
Mér finnst skipta máli að við munum hvað lífið snýst um. Það eru litlu hlutirnir með þeim sem okkur þykir mest vænt um sem skipta mestu máli. Þess vegna erum við með samverudaga hjá Eldabuskunni með 20% afslætti. Til að hvetja fjölskyldur og ástvini að eiga gæðastundir saman,“ segir Elín með bros á vör og vill endilega deila kóðanum með lesendum er „Njótum-saman“.
Aðspurð segist Elín borða flest allt. „ Mér finnst fátt jafn skemmtilegt og að prufa skrýtna rétti eða eitthvað óvenjulegt. Kom mér á óvart til að mynda hvað þurrkuð og krydduð engispretta er góð,“ segir Elín og hlær.
Elín gaf sér tíma á milli verkefna til að svara nokkrum heiðarlegum spurningum um matarvenjur sínar.
Hvað færðu þér í morgunmat?
„Svartan Nocco á hlaupunum.“
Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?
„Ég er algjör narslari og geri mjög mikið af því að grípa mér eitthvað í keyrslunni.“
Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?
„Við erum með Matarkompaní sem er hádegisverðar- og veisluþjónusta svo ég nýti mér hvert tækifæri til að fara inn í eldhús og grípa mér klassískan hádegismat.“
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
„Tilbúinn mat beint í ofninn frá Eldabuskunni en það er aðallega af því ég vil nýta tímann minn vel heima með Ingólfi syni mínum.“
Ferðu á Þorrablót?
„Nei, ég er ekki alin upp við það og er viss um að það sé ástæðan fyrir því að ég get ekki borðað þorramatinn. Ég er ekki hrifin af þorramatnum sem er í boði á þorrablótum en mér finnst harðfiskur og reykt hangikjöt gott, það væri sennilega það eina sem ég gæti borðað.“
Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að fara á, hvert ferðu?
„Uppáhaldsstaðurinn minn í augnablikinu er Tides á Edition-hótelinu við höfnina í miðborginni.“
Hvað færð þú þér á pylsuna þína?
„Ég held að val á pylsu sé góð leið til að meta hversu þroskaðir bragðlaukarnir þínir eru. Fullþroskaðir bragðlaukar fá sér eina með öllu.“
Hver er uppáhaldsrétturinn þinn?
„Pabbi hefur ekkert mikla ástríðu fyrir matargerð en á jólunum tók hann sig alltaf til og steikti humar upp úr hvítlaukssmjöri. Þetta var næstum því jafn spennandi og að opna pakkana þegar ég var yngri. En í dag er flestallur skelfiskur í uppáhaldi.“
Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?
„Klárlega salat, ég er með lítinn maga og get þá borðað meira.“
Uppáhaldsdrykkurinn þinn?
„Svartur Nocco eða Pino Gricio þegar á við.“