Spaghettí og bollur með ítölsku ívafi að hætti Ellu Stínu

Girnilegur réttur hjá Ellu Stínu með spaghettí og bollum með …
Girnilegur réttur hjá Ellu Stínu með spaghettí og bollum með ítölsku ívafi. Ljósmynd/Þórdís Ólöf Jónsdóttir

Elín Kristín Guðmundsdóttir, alla jafna kölluð Ella Stína líkt og vörumerkið hennar, hefur sett á markað tvær nýjungar í janúar, annars vegar „Flak í raspi“ og hins vegar „Bollur“ sem eru eins og kjöt- eða hakkbollur. Hún gefur lesendum matarvefsins hér uppskrift að einföldum og fljótlegum rétti þar sem bollurnar eru í forgrunni. 

„Í þessari uppskrift er ég með bollur sem minna á „hefðbundnar kjötbollur“. Bollurnar eru einfaldar að matreiða, þarf aðeins að hita í ofni eða steikja á pönnu og fullkomnar með hvaða spaghettí-rétt með ítölsku ívafi eins og þessi uppskrift er gerð úr,“ segir Elín.

Bollurnar er ný vara í vörulínu Ellu Stínu en allar …
Bollurnar er ný vara í vörulínu Ellu Stínu en allar hennar vörur eru vegan. Ljósmynd/Þórdís Ólöf Jónsdóttir

Spaghettí og bollur með ítölsku ívafi

  • 2 pk. bollur
  • 1 pk. spaghettí
  • 1 rauðlaukur, skorinn
  • 3 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 pk. kirsuberjatómatar
  • Pastasósa, magn og tegund að eigin vali
  • fersk basilíka eftir smekk
  • ólífuolía eftir smekk
  • salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Steikið bollurnar upp úr olíu á pönnu með lokinu á eða hitið í ofni.
  2. Hitið olíu í potti og mýkið rauðlauk og hvítlauk.
  3. Bætið því næst pastasósunni saman við ásamt kirsuberjatómötunum og leyfið því að malla á lágum hita meðan þið sjóðið spaghettíið samkvæmt leiðbeiningum.
  4. Þegar spaghettíið er nánast tilbúið er því bætt saman við sósuna ásamt örlitlu pastavatni, um 1 dl.
  5. Blandið bollunum saman við pastað í sósunni þegar þær eru tilbúnar.
  6. Berið réttinn fram með ferskri basiliku, salti og ólífuolíu.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert