„Ég er ananasmegin í lífinu“

Axel Þorsteinsson bakari sviptir hulunni af matarvenjum sínum og hefðum …
Axel Þorsteinsson bakari sviptir hulunni af matarvenjum sínum og hefðum þegaer matur er annars vegar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Axel Þorsteinsson bakari og konditor sviptir hulunni af matarvenjum sínum fyrir lesendum matarvefsins. Ástríðan hans fyrir mat hefur fylgt honum frá unga aldri og hann er sannfærður um að hún muni aldrei hverfa.

„Hvort sem það er að þróa nýjar uppskriftir, finna fullkomna samsetningu hráefna eða einfaldlega njóta góðrar máltíðar með fjölskyldu og vinum, þá finnst mér matur alltaf hafa þann kraft að tengja saman fólk og skapa upplifanir,“ segir Axel.

Hann er rekstrarstjóri hjá Hygge Coffee & Micro Bakery, sem er afar vinsælt bakarí og kaffihús í Vesturbænum í Reykjavík og til stendur að opna annað bakarí á Barónstíg í hjarta miðborgarinnar á næstu dögum eða vikum.

Axel bíður spenntur efitr að geta opnað fyrir viðskiptavinum á …
Axel bíður spenntur efitr að geta opnað fyrir viðskiptavinum á nýja staðnum á Barónsstíg en það verður annað bakaríið Hygge Coffee & Micro Bakery. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sneri heim til Íslands eftir 8 ára búsetu erlendis

„Ég er nýfluttur heim eftir að hafa búið í 8 ár erlendis þar sem ég starfaði sem Brands Executive Chef fyrir Alshaya Group í Miðausturlöndum. Þar hafði ég yfirumsjón með mörgum veitingastöðum og vann meðal annars með heimsfrægum bröndum eins og Bouchon, Princi og Dean & Deluca. Eftir umfangsmikla reynslu af veitingageiranum í fjórum löndum og heimsborgum eins og New York, Mílanó og London, ákvað ég að taka þessa reynslu með mér heim til Íslands. Ég sneri aðallega heim aftur til Íslands vegna fjölskyldunnar og til að búa öðruvísi lífi. Ævintýrið úti var alveg frábært en það tók á að eiga stóra fjölskyldu og maka hérna heima og vera svona langt í burtu,“ segir Axel meyr.

Aðspurður segir Axel að honum finnist veitingageirinn á Íslandi hafa vaxið hratt og gæðin séu sífellt að verða meiri.

Þörf á faglegri nálgun

„Veitingageirinn á Íslandi er ávallt á ferð og flugi og stefnir auðsjáanlega í rétta átt. Meiri

fagmennska, betri matur, flottari staðir og markmiðið er ávallt sett hátt. Það kemur ekkert á óvart því við erum með svo ótrúlega flotta fagmenn, kokka, bakara, framleiðslufólk og kjötiðnaðarfólk sem vill ávallt lyfta geiranum á hærra plan. Ég fann það vel þegar að ég var úti að þó maður var á flottustu stöðum heims þá var Ísland vel í takt við það og oftar en ekki betra.

Það sem hefur komið mér mest á óvart við heimkomuna er hversu aftarlega við erum komin varðandi vinnubrögð heilbrigðiseftirlitsins. Hér vantar grunnskilning á að greina á milli há- og lágáhættuvandamála og á því hvar lög og reglugerðir ættu raunverulega að koma til

framkvæmda. Sem dæmi nota þau hugtakið „krossmengun“ um nánast allt, jafnvel þar sem hætta er lítil sem engin, og leggja einnig of mikla áherslu á smávægileg mál á kostnað þeirra sem skipta raunverulega máli. Þetta tel ég valda sóun á bæði fjármagni fyrirtækja og ríkisins, þar sem tími og orka eru fara í röng verkefni vegna skorts á skilningi. Það er afar sorglegt að sjá og sýnir hversu mikil þörf er á faglegri nálgun og skýrri forgangsröðun,“ segir Axel alvörugefinn.

Axel fær sér oftast þrjú soðin egg í morgunmat.
Axel fær sér oftast þrjú soðin egg í morgunmat. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Oftast þrjú soðin egg í morgunmat

Þessa dagana er Axel að undirbúa opnun á Hygge-bakaríinu á Barónstíg og er orðinn mjög spenntur að bjóða viðskiptavini velkomna á nýja staðinn. Hann gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum um matarvenjur sínar á milli verkefna.

Hvað færðu þér í morgunmat?

„Þessa dagana næ ég oft ekki í morgunmat þar sem ég er alltaf á hlaupum. Þegar ég er kominn í vinnuna, með alla ofna á fullu, þá gríp ég mér oftast 3 soðin egg. Þá eru 8 mínútur og 20 sekúndur rétta suðan fyrir mig á eggjunum eða ég fæ mér skyr og ávexti. Í rútínu finnst mér best að útbúa hafragraut kvöldinu áður til að borða daginn eftir. Uppáhaldsgrauturinn er með súkkulaðipróteini, hnetusmjöri, kókosmjólk og banana.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Þegar ég dett úr rútínunni þá ratar alls konar ofan í mig þegar ég er að vinna. Súkkulaðibiti hér og þar, brauðendi og eitthvað svoleiðis snarl en ekkert af viti. Í góðri rútínu finnst mér best að grípa mér eina hleðslu, banana, skyrdollu eða hollan djús.“

Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?

„Ég elska kjöt og fisk og er mikill lambakjötsmaður. Mér finnst máltíð best ef hún er einföld,

þ.e.a.s. með góðu kjöti, smá grænmeti, brokkólí er til að mynda alltaf góður kostur. Ég vil ekkert hafa þetta of flókið.“

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?

„Hleðslu, egg, skyr, kotasælu, ost og smjör.“

Borðar ekki þorramat af frjálsum vilja

Ferðu á þorrablót?

„Ef mér væri boðið, já, en annars alls ekki.“

Borðar þú þorramat?

„Ekki af frjálsum vilja. Ef mér væri boðið þá borða ég og blanda geði.“

Hvað finnst þér best af þorramatnum?

„Sviðakjammi væri mitt besta.“

Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að fara á hvert ferðu?

„Ég fer á veitingastaðinnn OTO þessa dagana. Ég fór í fyrsta skiptið eftir að ég flutti heim og get ekki hætt. Ef ég fæ ekki borð þar þá verður Sumac fyrir valinu. Þessir staðir eru með betri stöðum í Reykjavík, ég fæ ávallt skothelda matarupplifun og hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum.“

„Ég er mikill pítsukarl“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Ég er svo mikill pítsukall. Ég er ananasmegin í lífinu en fæ mér hann samt þó sjaldan. Nokkrar samsetningar sem eru í uppáhaldi hjá mér eru til að mynda Focaccia-pítsa með Parmigiana-afgangi, Focaccia-pítsa með ítölskum kjötbollum, pomodoro-sósu og helling af osti. Síðan er það Neapolitan-pítsa með mozzarella, pepparóni, og ´nduja. Ég er ´nduja-sjúklingur.“

Hvað færð þú þér á pylsuna þína?

„Allt, ekki þess virði annars, lífið er of tómt ef það er ekki pylsa með öllu.“

Hver er uppáhaldsrétturinn þinn?

„Er ekki beint með einn rétt sem uppáhalds því ég fæ alltaf æði fyrir einhverju hráefni og finnst það gaman og svo fæ ég leið. En grillmat fæ ég aldrei leið á. Lamb, naut eða fiskur og helling af grænmeti.“

Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?

„Ég borða frekar salat þessa dagana, er kominn með nóg af kartöflum og finnst þær leiðinlegar.“

Hver er uppáhaldsdrykkurinn þinn?

„Þegar um er að ræða óáfenga drykki þá er það sódavatn með mjög mikilli kolsýru. Mér finnst það svala þorstanum vel eða bara kranavatn. Ef ekki þá er ég alltaf með eitthvað freyðandi og sykurlaust, ég get engan veginn sykur í drykkjum. Þegar kemur að áfengum drykkjum þá er það Old fasion, Negroni, Mezcal margarita eða eitthvað í þá áttina.“

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert