Fagna 80 ára afmæli Múmínálfanna í ár

Hlýr gulur litur með bleikum tónum eru einkennislitir nýju línunnar …
Hlýr gulur litur með bleikum tónum eru einkennislitir nýju línunnar frá Moomin sem fagnar 80 ára afmæli í ár. Ljósmynd/Aðsend

Nú geta aðdáendur Múmínálfanna glaðst því stórt ár er framundan hjá í tilefni 80 ára afmælis þeirra. Ný vörulína frá Moomin Arabia hefur litið dagsins ljós og markar upphaf áttræðisfögnuðar Moomin í ár. Þar er grunngildum Múmínálfanna sem tengja okkur við Múmínsögurnar gert hátt undir höfði, en þau eru kærleikur, vinátta og samvera.

Ný vörulína ber heitið „Friends Forever & Family Time“ eða „Vinir að eilífu og fjölskyldustund“ og minnir okkur á hversu dýrmætur tíminn er með ástvinum og okkar nánustu. Nýja línan inniheldur til að mynda krúsir, diska, skálar og vefnaðarvöru og verður fáanleg í verslunum hjá helstu söluaðilum Moomin á komandi dögum.

Krúsirnar tákna kærleik vináttu og samveru.
Krúsirnar tákna kærleik vináttu og samveru. Ljósmynd/Aðsend

Aftur til æskunnar

Myndskreytingarnar kalla fram dýrmætar æskuminningar með trjáklifri og ævintýraleit með æskuvinum á fallegan hátt. Vinir að eilífu línan sýnir einstaka vináttu Múmínsnáðans, Snúðs og Míu litlu.

Myndskreytingarnar eru innblásnar af myndasögunni „Samviskusami Múmínálfurinn“ frá árinu 1958 þar sem Múmínálfarnir reyna að lifa af hugsjón en uppgötva að lokum að sönn lífsgleði felst í því að fylgja hjartanu og njóta dýrmætra stunda með fjölskyldu og vinum.

Fallegir mjúkir tónar einkenna línuna og myndskreytingarnar eru innblásnar af …
Fallegir mjúkir tónar einkenna línuna og myndskreytingarnar eru innblásnar af myndasögunni „Samviskusami Múmínálfurinn“ frá árinu 1958. Ljósmynd/Aðsend

Fjölskyldustundir Múmínálfanna

Kastljósinu er beint að Múmínfjölskyldunni í línunni sem ber heitið Fjölskyldustund. Hún sýnir þá skilyrðislausu ást sem ríkir þeirra á milli og gleðina sem samvera veitir þeim. Línan inniheldur krús, sængurföt og handklæði ásamt diskum, skálum og bökkum með myndskreytingum í stíl. Hlýr gulur litur með bleikum tónum eru einkennislitir línunnar.

Táknrænt fyrir gleðina.
Táknrænt fyrir gleðina. Ljósmynd/Aðsend

80 stimpill á botninum

Allar vörur í línunni eru merktar sérstökum Moomin 80-stimpli á botninum sem einkennir þær sem sérstaka viðhafnarútgáfu. Einnig munu Moomin-hnífapörin hljóta yfirhalningu með nýjum og ferskum myndskreytingum úr nýrri línu svo fátt sé nefnt.

Öllum er boðið í afmæli Múmínfjölskyldunnar

Moomin Arabia fagna 80 ára afmæli Múmínálfanna í ár, en fyrsta sagan var gefin út árið 1945. Von er á fleiri sérstökum viðhafnarútgáfum út árið sem eru líklegar til að gleðja Múmínunnendur um allan heim.

 

Gott að hafa krúsina hjá sér á öllum stöðum heimilisins.
Gott að hafa krúsina hjá sér á öllum stöðum heimilisins. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert