Syndsamlega góði buffaló-kjúklingur rífur í og er fallegur í fati. Þennan rétt er fljótlegt að gera og hentar sem kvöldmatur, réttur á veisluhlaðborðið eða fyrir matarklúbbinn.
Blómkálið er einstaklega gott svona stökkt með kjúklingum og bræddum ostinum á meðan kotasælan og rjómaosturinn gefa einstaka áferð. Heiðurinn af þessari uppskrift á Thelma Þorbergsdóttir matarbloggari og gerði hún réttinn fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.
Buffaló-kjúklingur með blómkáli og bræddum osti
Fyrir 4
- 4 stk. kjúklingabringur
- 400 g kotasæla
- 200 g hreinn rjómaostur frá MS
- 60 ml Frank's Red hot buffaló sósa
- 200 g mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn
- 2 tsk. hvítlaukssalt
- ½ haus blómkál
Meðlæti og til skrauts
Aðferð:
- Eldið kjúklingabringurnar, annaðhvort með því að steikja þær á pönnu eða grilla á grilli.
- Kryddið kjúklinginn með hvítlaukssalti og skerið svo niður í munnbitastærð.
- Setjið kotasælu, rjómaost og 100 g af Mexíkó-ostablöndunni saman í skál ásamt buffalósósunni og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið kjúklinginn saman við, hrærið öllu saman og setjið í eldfast mót.
- Skerið blómkál gróflega niður og raðið því þétt ofan á kjúklingablönduna.
- Setjið restina af Mexíkó-ostinum yfir blómkálið og hitið inni í ofni við 180°C hita þar til osturinn hefur náð að bráðna alveg.
- Berið fram með niðurskornum vorlauk og nachos-snakkflögum.