Helga Magga heilsumarkþjálfi og áhrifavaldur gerði næringarríkan og bragðgóðan súkkulaðibúðing fyrir fylgjendur sína.
Samsett mynd
Helga Magga, áhrifavaldur með meiru, er ótrúlega sniðug að finna upp á réttum sem lauflétt er að útbúa og eru syndsamlega góðir. Á dögunum galdraði hún fram þennan súkkulaðibúðing sem gerður er úr kotasælu. Tær snilld hjá Helgu Möggu. Það geta allir leikið þessa list eftir og gert næringaríkan eftirrétt.
Súkkulaðibúðingur
Fyrir 4
- 400 g kotasæla
- 4 msk. kakó
- 1 msk. chiafræ
- 3 msk. hunang
- smá vanilludropar
Til skrauts:
Aðferð:
- Takið til fjögur glös á fæti.
- Setjið allt hráefnið saman í blandara eða matvinnsluvél og blandið vel saman.
- Skiptið blöndunni jafnt í glösin fjögur.
- Setjið í kæli í um það bil 30 mínútur.
- Skreytið með hindberjum og flórsykri ef vill.