Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal, matgæðingur með meiru, töfraði fram þetta girnilega grænmetislasanja sem hún bragðbætir með smá sætu, suðusúkkulaði og döðlum. Hún segir það vera galdurinn til að fá börn til að borða meira af grænmetisréttum eins og þessu lasanja. Hver og einn getur síðan valið sitt uppáhaldsgrænmeti í réttinn og þarf ekki endilega að fara bókstaflega eftir uppskriftinni heldur gera réttinn að sínum. Uppskriftina gerði Theodóra fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.
Grænmetislasanja
Fyrir 6
- 2 stk. gulir laukar, saxaðir
- 1 búnt spergilkál, smátt saxað nema stilkar
- 3 stilka sellerí (3 - 6)
- 1 box, sveppir, sneiddir (345 g)
- 2 stk. eggaldin, skorin í sneiðar
- ½ stk. kúrbítur, smátt saxaður
- 2 stk. sætar kartöflur, skornar í teninga
- 1 handfylli af söxuðum döðlum
- 40 g suðusúkkulaði
- 2 dósirniðursoðnir, saxaðir tómatar
- 2 dl vatn
- 2 grænmetisteningar
- Salt, svartur pipar, chili-flögur eftir smekk
- Olía til steikingar
- 1 pk. lasanjablöð
- rifinn mozzarella-ostur
- Parmesan, rifinn
- Salat að eigin vali
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Skerið allt grænmetið.
- Skerið laukinn í sneiðar, spergilkálið mjög smátt og sleppið stilkinum en það er auðvitað val, selleríið er skorið í sneiðar eins og sveppirnir.
- Kúrbíturinn er skorinn smátt.
- Steikið grænmetið í olíunni og á meðan er eggaldinið skorið langsum, penslað með olíu og hitað í ofninum.
- Kartöflurnar eru skornar í teninga (því smærri, því fljótari eru þeir að steikjast) og settir í ofninn og látnir verða mjúkir.
- Þegar grænmetið á pönnunni er orðið mjúkt er tómötunum hellt saman við ásamt vatni.
- Kryddið eftir smekk og bætið við döðlunum.
- Súkkulaðið er sett saman við alveg í lokin.
- Látið smásjóða á meðan grænmetið í ofninum er að klárast.
- Svo er bara að púsla þessu saman í form.
- Notið ekki allar kartöflurnar, geymið til að strá yfir í lokin.
- Sósa fyrst, lasanjablöðum og eggaldin raðað, sósa yfir, kartöflur og svo framvegis.
- Stráið osti yfir, vippið inn í ofninn og bakið í 30- 40 mínútur.
- Látið standa og kólna aðeins áður en þið berið réttinn fram.
- Gott er að bera fram með fersku salati og parmesanosti til að rífa yfir réttinn.